Heldur enn jól með fyrrverandi
Arnold Schwarzenegger eyðir jólunum með fyrrverandi þrátt fyrir að þau slitu samvistum fyrir um 15 árum síðan. AFP/Michael Tran
Á hverju ári heldur leikarinn Arnold Schwarzenegger heim til Mariu Shriver á jóladag. Þar halda þau jól með börnunum sínum fjórum, en fimmtán ár eru liðin frá því að þau slitu samvistum.
„Börnunum finnst gott að sjá okkur saman þótt við séum skilin,“ segir Schwarzenegger í samtali við People. Þess vegna hafi þau haldið í þennan sið.
Schwarzenegger og Shriver gengu í hjónaband árið 1986 og skildu formlega árið 2021, tíu árum eftir að þau slitu samvistum. Þau eiga nú þrjú barnabörn. Katherine, dóttir þeirra, á þau með eiginmanni sínum, leikaranum Chris Pratt.
Í samtali við People í fyrra sagði Shriver að gott væri á milli þeirra Schwarzeneggers. „Við hlæjum mikið að börnunum okkar, barnabörnunum og sjálfum okkur,“ sagði hún.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗