Kveður við nýjan tón hjá Elon Musk - Segist nú ekki vera MAGA-maður og sér eftir peningabruðlinu

Auðkýfingurinn Elon Musk var áberandi í kosningabaráttu Donald Trump Bandaríkjaforseta. Þar kom hann fram á kosningafundum og lagði auk þess mikla peninga í baráttuna. Þegar kom að þingkosningunum í ár ákvað Musk að vera minna áberandi í eigin persónu en nýtti veskið áfram óspart til að styðja við frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Demókrataflokkurinn endaði svo með að eiga stórsigur á kjördegi og hafa tryggt sér þingmeirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings.

Nú kveður við nýjan tón hjá ríkasta manni heims sem segir í samtali við The New York Times (NYT): „Ég meina ég er enginn MAGA-maður. Ég er ekki viss um hvað MAGA þýðir, en ég tel mig ekki, ég meina ef það þýðir einhvers konar blinda hlýðni við stefnumál Repúblikanaflokksins á það klárlega ekki við um mig. Ég held að það séu jákvæðar og neikvæðar hliðar á báðum flokkunum.“

Þetta er töluverður viðsnúningur hjá Musk sem í aðdraganda forsetakosninganna sagði á kosningafundi Trumps: „Eins og þið getið séð er ég ekki bara MAGA, ég er myrkra MAGA [e. dark maga].“

Á öðrum fundi sagði hann: „Ég er myrkur, gotneskur MAGA-liði.“

Eftir að Trump náði kjöri hélt Musk áfram að vísa til MAGA-hreyfingarinnar, en um er að ræða skammstöfunina Gerum Bandaríkin stórkostleg á ný, eða Make America Great Again. Musk hvatti Evrópubúa til að skella sér á vagninn og gerast MEGA-menn til að gera Evrópu stórkostlega aftur.

Nú er Musk þó ekki MAGA-maður og viðurkennir í samtali við NYT að hann hefði betur sleppt því að eyða svona miklum peningum í frambjóðendur Repúblikana.

„Mér líður frekar kjánalega yfir því að hafa varið svona miklum peningum og ekki fengið mikið fyrir það. En kannski hefði niðurstaðan orðið verri án þess. En þetta sýnir klárlega að kosningar í Bandaríkjunum snúast ekki bara um peninga. Þú getur dælt helling af peningum í kosningar og það hefur bara frekar lítil áhrif.“

Áætlað er að Musk hafi eytt hátt í 57 milljörðum vegna þingkosninganna í ár, einkum til að styðja frambjóðanda repúblikana til öldungadeildarinnar fyrir Texas, Ken Paxton, en hann laut í lægra haldi fyrir demókratanum James Talarico. Musk segir að ef hann gæti farið aftur í tímann þá hefði hann haldið fastar um veskið og ekki eytt svona miklu.

Musk segir við NYT að hann líti á sjálfan sig sem miðjumann. Hann hafi hvorki öfgakenndar skoðanir til vinstri né hægri.

„En stjórnmálin einkennast af mikilli ættbálkahugsun og margir geta ómögulega séð góðu hliðarnar á hinum flokknum og ekki nokkuð neikvætt við sinn eigin. Menn hafa meira og minna bundið fylgi sitt við sinn eigin flokk eins og þetta sé íþróttalið í heimabæ þeirra.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab