Enski miðjumaðurinn neitar að skrifa undir

Alex Scott.

Alex Scott. AFP/Marko Perkov

Enski knattspyrnumaðurinn Alex Scott hefur lítinn áhuga á því að skrifa undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Scott, sem er 23 ára gamall, er samningsbundinn Bournemouth til sumarsins 2028.

Hann hefur verið sterklega orðaður við Arsenal að undanförnu og þá hafa bæði Liverpool og Chelsea mikinn áhuga á honum.

Bournemouth vill fá í kringum 100 milljónir punda fyrir hann en gæti þurft að lækka verðmiðann á leikmanninum næsta sumar eða eiga það á hættu að missa hann frítt sumarið 2028.

Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, þjálfaði Scott hjá Bournemouth og er Scott sagður spenntur fyrir því að endurnýja kynnin við spænska stjórann.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab