Mikil óvissa um útflutningshorfurnar
Radarinn er gagna og greiningarvefur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. mbl.is/Árni Sæberg
Niðurstöður nýrra kannana draga upp fremur dökka mynd af fjárfestingaráformum í sjávarútvegi, segir í nýrri umfjöllun Radarsins.
Þar er bent á að samkvæmt könnun Seðlabankans sé sjávarútvegur eina atvinnugreinin á Íslandi þar sem gert er ráð fyrir minni fjárfestingu í ár. Í könnun Gallup mælist jafnframt mest svartsýni um fjárfestingaráform meðal stjórnenda í greininni.
„Þessar niðurstöður þarf að skoða í ljósi stórfelldrar hækkunar veiðigjaldsins,“ segir Radarinn og bendir á að fjárfestingar ráðist að miklu leyti af væntingum um framtíðararðsemi, ekki aðeins af rekstrarskilyrðum líðandi stundar.
„Miklar verðhækkanir á erlendum mörkuðum hafa vissulega verið hagstæðar, en umfang þeirra var ekki fyrirséð og þær geta gengið til baka.“
Af þeim sökum sé ekki hægt að draga þá ályktun af hagstæðri verðþróun í dag að stóraukin gjaldtaka hafi engin áhrif á fjárfestingarsvigrúm og verðmætasköpun til lengri tíma.
Áframhaldandi fjárfestingar eru sagðar lykilforsenda þess að sjávarútvegurinn geti staðist samkeppni, aukið framleiðni, skapað meiri verðmæti og styrkt framlag sitt til þjóðarbúsins.
„Það er því full ástæða til að hafa áhyggjur af þeim blikum sem nú eru á lofti varðandi fjárfestingar í sjávarútvegi,“ segir í umfjöllun Radarsins.
Radarinn fer yfir nýja spá Seðlabankans um versnandi útflutningshorfur, en bankinn gerir nú ráð fyrir að útflutningsframleiðsla sjávarafurða dragist saman um 9,1% á þessu ári, í stað 4,3% í fyrri spá.
Um leið er bent á að margir óvissuþættir geti haft áhrif á þróunina og að forsendur Seðlabankans um magn, verð og gengi bendi jafnframt til þess að útflutningsverðmæti sjávarafurða aukist á næsta ári.
„Seðlabankinn bendir á að endanlegar aflaheimildir í loðnu liggi enn ekki fyrir en lokaráðgjöf Hafró verður gefin út að lokinni vetrarmælingu eftir áramót. Eins gæti verð sjávarafurða gefið eftir ef framboð eykst, alþjóðleg eftirspurn veikist eða neysluvenjur breytast. Þá er að vanda mikil óvissa um gengisþróun.“
Alla greiningu Radarsins má finna HÉR.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗