FH upp í þriðja sæti eftir sigur á Akureyri
FH er komið í þriðja sæti úrvalsdeildar karla í handbolta eftir útisigur á Þór Akureyri, 37:30, á Akureyri í dag.
FH er með þrettán stig í þriðja sæti eftir sigurinn, fimm stigum á eftir toppliði Hauka. Þór er aftur á móti í áttunda sæti með sex stig.
FH var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 17:13, og jók forskot sitt í þeim seinni.
Einar Rafn Eiðsson og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu sex mörk hvor fyrir FH en Jón Þórarinn Þorsteinsson fór á kostum í marki FH-inga og varði 19 skot.
Hjá Þór skoraði Bertram Simonsen átta mörk en Nikola Radovanovic varði 15 skot.
Mörk Þórs: Bertram Simonsen 8, Hafþór Már Vignisson 7, Mikkel Bak Scheumann Jensen 4, Sigurður Ringsted Sigurðsson 3, William Skovager 3, Brynjar Hólm Grétarsson 2, Lárus Breki Gærdbo Ágústsson 1, Oddur Grétarsson 1, Oliver Möller Christensen 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 15.
Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Gunnar Kári Bragason 5, Antoine Óskar Pantano 4, Eiður Rafn Valsson 4, Símon Michael Guðjónsson 4, Ágúst Guðmundsson 2, Ingvar Dagur Gunnarsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Einar Örn Sindrason 1, Leonharð Þorgeir Harðarson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 19, Ólafur Rafn Gíslason 1.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗