Sterkur útisigur Víkings
Víkingur vann Fram 36:28 í níundu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Úlfarsárdal í kvöld. Með sigrinum jafnaði Víkingur Fram að stigum en bæði lið eru með sex stig líkt og Þór í 7-9. sæti.
Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik. Víkingar komust þremur mörkum yfir 11:8 um miðbik hálfleiksins en Fram var komið yfir 14:13 skömmu síðar. Heimamenn fóru með eins marks forskot 17:16 inn í hálfleikinn.
Fram var áfram með frumkvæðið fyrri hluta síðari hálfleiks en Víkingum tókst að jafna 24:24 og aftur 25:25 þegar hálfleikurinn var um það bil hálfnaður. Víkingur skoraði svo einnig næstu fjögur mörk og breyttu stöðunni í 29:25.
Gestirnir voru áfram sterkari á lokakafla leiksins og unnu að lokum átta marka sigur, en Víkingur vann seinni hálfleikinn með níu mörkum 20:11.
Jón Karl Einarsson var markahæstur gestanna með átta mörk úr átta skotum. Kristján Helgi Tómasson og Elvar Otri Hjálmarsson komu næstir með fimm mörk hvor.
Hjá Fram var Haukur Ingi Hauksson atkvæðamestur með sjö mörk og Marel Baldvinsson skoraði fimm.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
