Arteta: Stoltur af frammistöðunni

Mikel Arteta fagnaði sigrinum vel með leikmönnum sínum eftir leik.

Mikel Arteta fagnaði sigrinum vel með leikmönnum sínum eftir leik. AFP/Darren Staples

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var afar ánægður með sigur liðsins á Liverpool á Anfield og sagði sigurinn sérstaklega ánægjulegan í ljósi þess hversu langt væri síðan Arsenal hefði síðast unnið þar.

„Það er enn betra að vinna á Anfield sem knattspyrnustjóri, enda er svo langt síðan það gerðist síðast. Við þurftum virkilega á þessum sigri að halda. Við erum afar stoltir, sérstaklega eftir tapið gegn Fleetwood. Við þurftum að rífa okkur upp,“ sagði Arteta.

Arsenal hafði ekki unnið á Anfield í 14 ár og lagði Arteta áherslu á að liðið hefði þurft að sýna mikla einbeitingu til að rjúfa þá bið.

„Þetta var verkefni sem við höfðum ekki tekist á við í 14 ár. Við vissum að við þyrftum að gera nánast allt rétt og komast í gegnum erfið tímabil í leiknum. Liverpool skapar oft mikinn usla en mér fannst frammistaða okkar mjög sannfærandi og ég er afar ánægður.“

Arteta sagðist hafa fundið á sér að tíminn væri kominn til að breyta sögunni á Anfield.

„Ég hafði á tilfinningunni að nú væri rétti tíminn. Við þurftum að leggja mikið á okkur og nutum stundum góðs af heppni. Við sýndum gæði á mikilvægum augnablikum og það skilaði okkur sigrinum,“ sagði hann.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅