Reyndi að kalla fram réttar tilfinningar

Sesselja Thorberg rekur fyrirtækið Fröken Fix.

Sesselja Thorberg rekur fyrirtækið Fröken Fix.

Sesselja Thorberg hönnuður og eigandi Fröken Fix fékk það verkefni að hanna fallegt fjölskylduhús sem reist var 1969 og er 140 fm að stærð. Húsið var komið til ára sinna og þurfti að endurnýja allar innréttingar og gólfefni.

„Viðskiptavinur minn nálgaðist okkur fyrir tveimur árum þar sem hún var að festa kaup á húsinu af móður sinni en hún ólst sjálf upp í þessu húsi. Húsið virtist vera í ágætis ástandi þannig lagað. Það var búið að hugsa vel um það þessi 55 ár en það var veruleg þörf á að uppfæra það allt saman. Panill var á einhverjum veggjum og í lofti og gólfefnin voru ónýt. Skipta þurfti út öllum innréttingum í eldhúsi og baðherbergi,“ segir Sesselja aðspurð hvernig þetta verkefni hafi komið til. Húsið var allt mjög lokað, eldhús og baðherbergi lítil í samhengi við húsið í heild og ekki í neinni tengingu við stóran og fallegan garð fyrir utan.

„Það þurfti að skipta um allar pípulagnir, rafmagn og innréttingar, sem voru komnar á tíma. Þar sem endurskipulagning á húsinu var nauðsynleg var farið í að skipta öllu út og aðlaga að nýju skipulagi.“

Skipt var um öll góflefni í húsinu og gluggar stækkaðir.

Skipt var um öll góflefni í húsinu og gluggar stækkaðir.

Hvaða hugmyndir voru húsráðendur með?

„Húsráðandi vildi hafa þetta létt en þó með smá „Fröken Fix-stíl“ eins og það var orðað. Við unnum forhugmyndavinnu í miklu samstarfi en þar kemur líka góð þarfagreiningarvinna sterk inn. Fyrst þarf að skoða hvernig heimilið á að virka í flæði og notkun áður en efni er lagt ofan á. Þegar það er komið þá er eftirleikurinn þægilegur. Hún var með sterka sýn á hvernig hana langaði að líða inni í húsinu eftir svæðum og var það sterkur grunnur. Hún sagði oft „ég vil geta setið hér og upplifað þetta“ eða „ég myndi vilja hafa þetta svæði extra bjart“. Við hönnuðum eftir þeim tilfinningum,“ segir Sesselja.

Hvaða hugmyndir varst þú með?

„Hlutverk okkar er alltaf að hlusta vel á viðskiptavininn og reyna að hanna ofan á þær tilfinningar sem hann vill upplifa og tjáir. Mér finnst það mikilvægt. Svo komum við með helling af hugmyndum sem styðja við þær. Við vildum til dæmis stækka baðherbergið talsvert og var alveg svigrúm til þess. Ég þurfti aðeins að sannfæra hana um það í byrjun en svo þegar heildin kom þá sá hún auðvitað að það var rökrétt, svo eitthvað sé nefnt.“

Það er mikið lagt í alls konar smáatriði eins og bekkinn í eldhúsinu og það horn allt saman. Getur þú sagt mér betur frá því?

„Þegar búið var að taka út nokkra létta veggi og opna húsið aðeins betur opnuðust möguleikar á öðruvísi hönnun, sem ekki er kannski algengt á íslenskum heimilum. Hugmyndin að þessum bekk er sú að þarna sé „franskur borðkrókur“. Það er að segja borðkrókur sem er eins konar millistig frá eldhúsinu, ekki inni í eldhúsinu eins og algengt er, og út í garð. Skipt var um svalahurð sem þarna var á bak við gluggatjaldið og sett stór rennihurð sem er út í fallegan garð. Útfærslan á þessu er algjörlega okkar, en þarna er gott dæmi um að „hanna ofan á tilfinningu“ því viðskiptavininn langaði að sitja þarna, geta unnið og fundið fyrir sólinni og lyktinni úr garðinum. Einnig lýsti hún því sterkt að geta boðið í kaffi á huggulegum stað en ekki verið í hefðbundinni borðstofu og ekki inni í eldhúsinu sjálfu. Þá var þetta niðurstaðan!“

Guli bekkurinn í eldhúsinu setur svip á heimilið.

Guli bekkurinn í eldhúsinu setur svip á heimilið.

Hvað um eldhúsinnréttinguna sjálfa? Úr hvaða efniviði er hún? Þarna er líka mikið lagt í gler og lýsingu.

„Eldhúsinnréttingin er útpæld hjá okkur. Alls konar leyni þar,“ segir hún og bætir við:

„Svo tekin séu dæmi þá er sérhilla í eyjunni fyrir hundadallana svo þeir þurfi ekki að vera á gólfinu, há leynihurð sem virðist vera hluti af innréttingunni en er í raun aðgengi að geymslu, falinn frystir undir borðplötu og annað slíkt. Efniviðurinn er dökklituð eik og enn í dag er ég þakklát innréttingasmiðnum mínum fyrir alla þá vinnu sem fór í að finna rétta tóninn. Það voru miklar andstæður á milli þess ljósa og dökka og þá var mjög nauðsynlegt að hafa gler þar sem við á svo innréttingin yrði ekki of „þung“. Rifflað gler var sett í stað venjulegs, sem er einmitt líka tenging við baðherbergið en sturtuglerið er rifflað.

Hvað um baðherbergin?

„Í stærra baðherberginu, sem við stækkuðum, tengdum við innréttingar og glerval við eldhúsið til þess að búa til heild. Einnig er hluti flísanna með rifflum í til að tengja enn frekar við glerið. Öll tæki eru mjög vönduð og gáfu okkur kost á að hafa blöndunartækin á öðrum stað en sturtuhausinn sjálfan og þannig gera aðgengið betra inn í sturtu. Vaskurinn var svo smíðaður úr sama steini og er á eldhúsinu.

Hugmyndin að speglaskápunum var að skáparnir yrðu nokkuð „ósýnilegir“ en þeir mynda stóran speglavegg í samspili við spegla fyrir ofan skápana, sem ná upp í loft. Á milli spegla var svo komið fyrir fallegri lýsingu. Þessi samsetning leikur líka stórt hlutverk í að fá baðherbergið til að virðast enn stærra en það er. Þegar við hófum verkefnið sagði húsráðandi okkur frá því að annað klóakrör væri til staðar í anddyrinu og þar hefði verið gert ráð fyrir gestasalerni en það var aldrei gert. Það var því alveg tilvalið að útbúa þarna lítið gestasalerni og gefa því dálítinn karakter.“

Mikið var lagt í öll smáatriði í hönnuninni eins og þessi lýsing gefur til kynna.

Getur Fröken Fix notað jarðliti?

Þú notar óvenjumikið af jarðlitum inn á þetta heimili. Fröken Fix er oft töluvert litaglaðari. Var það ekkert erfitt fyrir þig að fara í bæsaða eik og náttúrustein?

„Nei, aldeilis ekki! Góður hönnuður þarf að geta gert allt, er það ekki? Vissulega er stíllinn, fljótt á litið, ólíkur því sem við erum að gera fyrir fyrirtæki og stórar skrifstofur en þar gilda líka aðrar reglur. En jú, það er rétt að því leyti að við höfum verið blessuð að vinna fyrir fyrirtæki sem hafa treyst okkur fyrir meðal annars vali á litum sem við vitum að auka afköst, ýta undir fyrirtækjavitund og styðja góða vinnustaðamenningu. Einbýlishús í Garðabæ er bara önnur deild. Þarna tóna ljósir litir við dökkar innréttingar en hver ljós litur hefur sinn undirtón. Við setjum svo sterkari liti á áherslusvæði, baðherbergið er í grágræna litnum „huggulegur“ og djúpblár dökkur litur í svefnherberginu bæði á veggjum og lofti. Áherslan var bara önnur í þessu verkefni. Við stækkuðum til að mynda gluggana í stofunni svo þeir yrðu gólfsíðir og bættum við stórri rennihurð. Sinnepsguli bekkurinn er í miðju húsinu og er sjáanlegur alls staðar. Hann er aðalgæinn. Að fara vel með liti snýst ekki alltaf um áberandi liti heldur getur það líka snúist um að setja saman fallega ljósa liti með tilliti til birtu, hvort sem hún er frá suðri eða norðri. Það er sú leið sem við fórum með þessum viðskiptavini.“

Svo er hestaveggfóður í húsinu. Segðu mér betur frá því.

„Hestaveggfóðrið góða er algjör dásemd. Mér hefur alltaf fundist svona lítil salerni mega vera dálítið öðruvísi. Þar sem eigandinn er mikil hestakona og starfar einnig með hesta og hestafólk fannst mér tilvalið að sameina þetta tvennt og úr verður áhugavert lítið salerni, sem samt sem áður er ekkert „of mikið“ því það er jú ljóst.“

Sturtuglerið rímar við glerið í eldhúsinnréttingunni og þannig varð til falleg heildarmynd.

Hvað stendur upp úr þegar þetta verkefni er skoðað? Af hverju ertu stoltust?

„Það sem stendur upp úr í þessu verkefni er viðskiptavinurinn. Ég hafði komið til hennar fyrir nokkrum árum í Quick Fix-ráðgjöf og þótti vænt um að heyra í henni aftur. Hún treysti mér frá byrjun fyrir því að leiða hennar sýn á þetta viðamikla og tímafreka verkefni, að hanna ofan á hennar „tilfinningar“, eins og ég tala um hér að ofan, og svo treysti hún okkur fyrir framhaldinu og að leiða verkefnið. Við réðum alveg stórkostlega iðnaðarmenn og byggingarstjóra og fylgdum verkinu alveg eftir með verkfundum vikulega. Við nánast skúruðum okkur út! Svo verkefninu var alls ekki lokið þegar hönnunin var komin. Þá þurfti að búa þetta allt saman til! Ég er afar stolt af þessu verkefni á allan hátt. Tel okkur hafa fengið eins mikið út úr þessu húsi og hægt var með hjálp fagmanna í hverju horni. Mín von er að viðskiptavinur okkar njóti sín þarna um ókomna framtíð, alveg eins og hún gerði í barnæsku.“

Fataskápurinn í forstofunni er með gulri pullu sem rímar við bekkinn við eldhúsið. Takið eftir hestaveggfóðrinu á baðherberginu.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅