Edda og Kristján seldu höllina á 60 milljónir

Kristján Helgi og Edda Falak.

Kristján Helgi og Edda Falak. Skjáskot/Instagram

Edda Falak, fyrrverandi hlaðvarpsstjarna, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eru búin að selja íbúð sína á Holtsgötu 24 í 101 Reykjavík. Edda og Kristján settu íbúðina á sölu í sumar og var ásett verð 61,9 milljón.

Edda og Kristján fengu 60 milljónir fyrir íbúðina. Það var ferðaþjónustubóndinn Stefan Michel sem keypti íbúðina af þeim Eddu og Kristjáni. Stefan Michel er meðeigandi í ferðaþjónustu sem er kennd við Miðgarð. 

Féll fyrir Íslandi

Stefan er Svisslendingur og nam hótelfræði í Lausanne í Sviss. Í stað þess að fara í starfsnám til heimsborga á borð við Parísar og New York ákvað hann að fara til Íslands. Hann fékk vinnu á litlu hóteli á Hvolsvelli árið 2007. Þá var ferðaþjónustan ekki eins stór starfsgrein og hún er núna. Stefan fór að venja komur sínar til Íslands og fyrir rúmlega tíu árum ákvað hann að flytja í sumarbústað á Íslandi. Hann átti seinna eftir að fjárfesta í Miðgarð ferðaþjónustunni sem fór sístækkandi. 

Hér má sjá stofuna á Holtsgötu 24.

Hér má sjá stofuna á Holtsgötu 24. Af fasteignavef mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅