Theodóra eltir hönnunardrauminn í London
Vöruhönnuður inn Theodóra Alfreðsdóttir sýnir hönnun sína í Mikado á Hafnartorgi á Hönnunar- Mars mbl.is/Ásdís
Theodóra Alfreðsdóttir er íslenskur vöruhönnuður með aðsetur í London. Hún hannar húsgögn og muni fyrir heimilið, með áherslu á efnivið og handverksaðferðir. Hún lauk meistaranámi við Royal College of Art og rekur eigin hönnunarstofu samhliða kennslu við Goldsmiths.
„Ég hélt lengi að ég myndi verða arkitekt, en þegar ég kynntist vöruhönnun fann ég að umfangið og tímalína verkefnanna hentuðu mér betur. Mér fannst sérstaklega spennandi að vinna náið með efni, gera tilraunir og fylgja hugmynd alla leið að hlut sem maður getur snert og notað. Þannig að ég áttaði mig fljótt á því að þetta væri það sem mig langaði að gera,“ segir Theodóra þegar hún er spurð að því hvernig áhuginn á faginu kviknaði.
Hvernig er að vera íslenskur vöruhönnuður í London?
„Hér er mjög gott aðgengi að efnivið, verkstæðum og framleiðendum. Það skiptir mig miklu máli, þar sem vinnan mín byggir svo mikið á því að prófa mig áfram, og auðveldar mér að gera tilraunir og koma hugmyndum í framkvæmd.
Svo er skapandi samfélagið ótrúlega stórt og fjölbreytt. Það eru alltaf sýningar að sjá, áhugavert fólk að hitta og eitthvað að gerast sem gefur manni nýjar hugmyndir. Það getur samt verið svolítið yfirþyrmandi þegar svona margt spennandi er að gerast í kringum mann. Þá finnst mér gott að draga mig aðeins í hlé og gefa mér tíma til að prófa eigin hugmyndir og sjá hvert þær leiða mig.“
Er umhverfið, stefnur og straumar svipaðir á Englandi og á Íslandi eða er eitthvað allt annað að gerast?
„Ég held að stærsti munurinn sé í stærð og uppbyggingu hönnunargeirans. Hér eru mörg rótgróin fyrirtæki, framleiðendur og gallerí sem skapa möguleika fyrir hönnuði. Á Íslandi er þetta á minni skala, en hefur verið að vaxa.
Mér finnst líka áhugavert að það eru ekki alltaf sömu nöfnin eða verkin úr alþjóðlega hönnunarheiminum sem fá athygli á báðum stöðum. Í samtölum við kollega á Íslandi fæ ég því stundum aðra sýn á það sem er að gerast. Þannig að það er gefandi að vera í tengslum við bæði umhverfin.“
Það sem venjulega er talið vera galli er áhugavert
Nýlega sýndi Theodóra hönnun sína á London Design Festival. Hún var með húsgögn til sýnis á tveimur sýningum á hátíðinni.
„Á Messy Heart, sem 2LG Studio stóð fyrir, sýndi ég lágan skáp og hliðarborð. Skápurinn er klæddur ljósum spóni og mynstrið í viðnum verður misáberandi eftir því hvernig birtan fellur á hann. Steypt tinhandföng eru fest með skrúfum sem litlar kúlur úr seglum fela. Kúlurnar virðast vera skraut en gegna þannig líka praktísku hlutverki.“
Theodóra hugsar út í öll smáatriði. Hér má handgöngin á lága skápnum sem hún hannað nýverið. Ljósmynd/2LG
„Hliðarborðið er úr hnotu. Ég byrjaði á að hugsa það sem tvívíða samsetningu og skoða samspil formanna í framhliðinni. Síðan þróaði ég samsetninguna yfir í þrívítt form þar sem dýpt og skuggar verða hluti af heildinni. Ofan á viðnum er þunn plata úr svörtu ryðfríu stáli sem virðist nánast svífa yfir honum.“
Á hinni sýningunni sýndi Theodóra skemmtilega kolla.
„Hjá LOBBY sýndi ég kolla úr eik sem er flokkuð í lægri gæðaflokka að miklu leiti vegna stærða og fjölda kvista í henni. Í stað þess að forðast þessa eiginleika fyllti ég kvistina með bræddu tini og gerði þá að áberandi hluta af kollunum. Mér finnst spennandi að skoða hvernig eiginleikar sem eru venjulega taldir gallar geta orðið það áhugaverðasta við hlutinn.
Þar sýndi ég líka lítinn bronsbakka þar sem steypustúturinn, sem venjulega er fjarlægður eftir að bronsið er steypt, myndar fót undir bakkann. Þannig fær ummerki úr framleiðsluferlinu að verða hluti af hlutnum sjálfum.“
Varan kemur í ljós í gegnum ferlið
Hvernig er hönnunarferlið þitt?
„Oft byrjar verkefni hjá mér með efni eða ákveðinni aðferð sem mig langar að kanna. Ég fæ eitthvað svolítið á heilann og þarf að sjá hvað gerist ef ég prófa mig áfram með það. Oftast kemur varan því í ljós í gegnum ferlið frekar en að vera fyrirfram ákveðin.
Fold Mirror er gott dæmi um hvernig einföld aðgerð getur orðið að meginhugmynd hlutarins. Hann byrjaði sem einföld brot í pappa sem vöktu áhuga minn. Ég fór að velta fyrir mér hvernig hægt væri að yfirfæra þau í efni sem entist lengur og úr varð spegill úr einni samfelldri plötu af ryðfríu stáli. Þar nýtast eiginleikar stálsins, bæði stífleikinn og hæfileikinn til að endurkasta ljósi. Spegilfægður flöturinn mætir handburstuðum hluta sem dregur fram mismunandi eiginleika stálsins og sýnir hvernig hluturinn er mótaður.
Ég vinn með skissur og tölvuteikningar, en það er mikilvægt fyrir mig að prófa líka í höndunum. Efnið bregst ekki alltaf við eins og maður ímyndar sér og oft verða áhugaverðustu hlutirnir til einmitt þar. Svo þarf að finna hvernig hugmyndin getur orðið að hlut sem virkar í notkun.“
Hér má sjá sjá spegilinn Fold Mirror. Spegillinn byrjaði sem einfalt brot í pappír. Ljósmynd/Lewis Rhodes
Þrátt fyrir að London Design Festival sé nýlokið er alltaf jafn mikið að gera hjá Theodóru.
„Núna er ég á fullu að undirbúa jólasöluna og vinna að því að koma grunnlínunni minni, Core Collection, í fleiri verslanir. Undanfarið hef ég verið að byggja upp safn húsgagna og minni muna fyrir heimilið. Þar eru meðal annars Fold Mirror-spegillinn, snagar og veggverk.
Mig langar að þessi hluti vinnunnar verði aðgengilegri og að fólk geti séð vörunar og kynnst þeim hjá fleiri söluaðilum. Samhliða því vil ég áfram hafa svigrúm fyrir tilraunir og verkefni sem geta tekið óvæntar stefnur. Verkin eru einnig fáanleg í gegnum vefsíðuna mína, theodoraalfredsdottir.com.“
Hlutur sem er kunnuglegur en vekur sífellt forvitni
Ertu með eitthvað draumaverkefni?
„Mig langar mjög mikið að vinna meira með arkitektum og innanhússarkitektum að verkum fyrir ákveðin rými. Mér finnst spennandi þegar rýmið sjálft verður hluti af verkefninu og hefur áhrif á hlutföll, efni, liti og notkun hlutarins.
Ég hef unnið á þennan hátt með Tino Seubert í ljósaseríunni okkar Corrugation Lights. Þar höfum við aðlagað lengdir, liti og útfærslur að ákveðnum rýmum í samtali við innanhússhönnuði. Mér finnst spennandi að hanna eitthvað sem á sérstaklega heima á ákveðnum stað og langar að gera meira af því.“
Áttu uppáhaldsverk sem þú hefur hannað?
„Uppáhaldsverkið mitt er yfirleitt það sem ég er að vinna að hverju sinni. Ég verð svo upptekin af því sem ég er að skoða og möguleikunum sem það opnar. Núna eru það heimurinn í kring um eikarkollana með tininu. Ég er bæði spennt fyrir þeim sjálfum og því sem gæti komið á eftir. Að finna verðmæti í eiginleikum sem eru annars taldir óæskilegir hefur verið rauður þráður í mörgum verkanna minna, en með kollunum opnuðust nýir möguleikar sem mig langar að kanna áfram.“
Hvað vonast þú til að hlutirnir þínir gefi heimilinu?
„Mig langar að búa til hluti sem falla vel inn á heimilið og hversdaginn, en gefa manni samt litla ástæðu til að staldra við. Það getur verið formið, hvernig ljósið fellur á þá eða eitthvað sem er gott að snerta. Mér finnst fallegt að hugsa til þess að fólk geti notað hlut á hverjum degi og samt tekið eftir einhverju við hann aftur og aftur. Að hann verði kunnuglegur, en haldi áfram að vekja smá forvitni eða ánægju,“ segir Theodóra sem er hvergi nærri hætt að fá góðar hugmyndir.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





