Flosi Eiríksson keypti 160 milljóna einbýli

Flosi Eiríksson hefur fest kaup á fallegu húsi við Grettisgötu.

Flosi Eiríksson hefur fest kaup á fallegu húsi við Grettisgötu. Samsett mynd

Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Örtækni ehf. og fyrrverandi sveitastjórnarmaður hefur fest kaup á fallegu einbýlishúsi við Grettisgötu. Um er að ræða 204 fm einbýlis sem reist var 1908. 

Húsið er á þremur hæðum með kjallara, hæð og risi. Það hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár. Árið 2005 var bílskúr reistur við húsið og er sérbílastæði á lóðinni. 

Í eldhúsinu er grá sprautulökkuð innrétting og hvítar í frönskum stíl. Parket er á gólfum og eru gluggar stíflakkaðir hvítir. 

Flosi keypti húsið af Elínu Ögmundsdóttur og Óla Þór Hilmarssyni. Hann greiddi 160.500.000 kr. fyrir húsið. 

Hann bjó áður í einstöku húsi við Kópavogsbakka í Kópavogi og seldi húsið á dögunum á 285.000.000 kr. 

Smartland óskar Flosa til hamingju með nýja húsið! 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅