Tískudrottning selur íbúð við Reynimel

Eva Katrín Baldurssdóttir hefur sett íbúð við Reynimel á sölu.

Eva Katrín Baldurssdóttir hefur sett íbúð við Reynimel á sölu. Samsett mynd

Eva Katrín Baldursdóttir, eigandi tískuverslunarinnar Andrá Reykjavík, og unnusti hennar, Ragnar Jón Hrólfsson fjölmiðlamaður, hafa sett fallega íbúð við Reynimel á sölu. 

Íbúðin er 94 fm, fjögurra herbergja endaíbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 1966. Íbúðin er á fjölskylduvænum og vinsælum stað í Vesturbænum. 

Það kemur ekki á óvart að heimili verslunareigandans sé fullt af skemmtilegum smáatriðum og fallegum munum. Stofan er björt með stórum gluggum og er borðstofan í sama opna rými. Eldhúsið er með hvítri innréttingu og svörtum kvartsein á borðum. 

Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2017 þar sem meðal annars var ráðist í endurbætur á eldhúsi og baðherbergi, gólfefni endurnýjuð og nýtt rafmagn dregið.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Reynimelur 92

Stofan er björt með stórum gluggum. Vertigo-ljósið gerir einstaklega mikið fyrir rýmið. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Borðstofan og stofan eru í sama rými og er hálf-opið inn í eldhús. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Svarti steinninn í eldhúsinu er æðislegur.

Svarti steinninn í eldhúsinu er æðislegur. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Íbúðin er björt og falleg á fjölskylduvænum stað.

Íbúðin er björt og falleg á fjölskylduvænum stað. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Baðherbergið er skemmtilegt með baðkari og sturtu.

Baðherbergið er skemmtilegt með baðkari og sturtu. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅