Fyrrverandi forstjóri Teya selur höll Baltasars og Sunnevu

Brian Jeffrey Gross hefur sett einbýlishús við Smáragötu 10 á sölu. Samsett mynd

Brian Jeffrey Gross fyrrverandi forstjóri Teya hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt við Smáragötu í Reykjavík á sölu. Húsið er 375,6 fm að stærð og hefur verið endurnýjað frá grunni. Það var reist 1931. Brian keypti húsið ásamt þáverandi kærustu af Baltasar Kormáki Baltasarssyni leikstjóra og hannaði Sunneva Ása Weisshappel húsið að innan. 

Vandað var til verka og voru innréttingar sérsmíðaðar. Náttúrulegir tónar og kalkmálning leika aðalhlutverk á efri hæðum hússins en í kjallara fékk listagyðjan að leika lausum hala í litavali.

Húsið er á þremur hæðum og var allt gert til þess að hlúa að hverju smáatriði. Olíuborinn askur er á gólfum hússins og eru gluggatjöld sérsaumuð en þau eru úr 100% hör. 

Sunneva Ása Weisshappel hannaði eldhúsið.

Sunneva Ása Weisshappel hannaði eldhúsið. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

200 ára gamall viður 

Sunneva Ása lagði metnaði í hönnun eldhússins og er innréttingin úr timpri sem kemur úr 200 ára gamalli norskri hlöðu. Borðplatan er úr kvartsíti með innbyggðu skurðarbretti og í eldhúsinu eru vönduð tæki frá meðal annars SMEG, Liebherr og Miele.

Sami gamli viðurinn var notaður í bókahillur í setustofunni þar sem sérhannaður sófi fellur vel inn í umhverfið. Milli borðstofu og setustofu er glæsilegur arinn sem nýtur sín frá báðum rýmum.

Á efri hæð hússins eru þrjú rúmgóð svefnherbergi en eitt þeirra hefur verið útbúið sem sérstakt kvikmyndaherbergi. Hjónasvítan er ekki af verri endanum með rúmgóðu fataherbergi og baðherbergi þar sem steinbaðkar, steinvaskar og sérsmíðaðar innréttingar setja svip sinn á rýmið. Í gluggum baðherbergisins er jafnframt listaverk úr útskornu járni sem hleypir birtunni inn á skemmtilegan hátt.

Á neðstu hæðinni er stúdíóíbúð með eldhúsi, baðherbergi og svefnaðstöðu. Þar hefur einnig verið farið óhefðbundnar leiðir í efnisvali því borðplata og fleiri innréttingar eru meðal annars unnar úr gömlu gólfi keiluhallar.

Veggir eru kalkmálaðir og í húsinu er sérsmíðaður sófi.

Veggir eru kalkmálaðir og í húsinu er sérsmíðaður sófi. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Garðurinn er sannkallaður sælureitur en hann snýr í suðvestur og var tekinn í gegn árið 2023. Þar eru fallegar verandir, skjólveggir, gróður og sauna sem gerir garðinn að notalegum stað til að njóta lífsins allan ársins hring.

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Smáragata 10

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅