Thelma Fanney keypti íbúð í Garðabæ

Telma Fanney Magnúsdóttir hefur fest kaup á íbúð í Garðabæ.

Telma Fanney Magnúsdóttir hefur fest kaup á íbúð í Garðabæ. Samsett mynd

Einkaþjálfarinn Telma Fanney Magnúsdóttir, sem er með BA-próf í lögfræði og diplómu úr jákvæðri sálfræði, hefur fest kaup á íbúð. Þetta gerði hún eftir að upp úr trúlofun hennar og Jökuls Júlíussonar, forsprakka hljómsveitarinnar Kaleo slitnaði. 

Telma Fanney er flutt í nýja íbúð í Garðabæ sem er við Vetrarbraut. Íbúðin er 61,8 fm að stærð og greiddi hún 71.900.000 kr. fyrir íbúðina. 

Telma Fanney er mjög hraust og hefur haft brennandi áhuga á heilsu og hreyfingu síðan hún var unglingur. 

„Ég myndi segja að raunverulegur áhugi á heilsu og hreyfingu hafi byrjað hjá mér um 18 til 19 ára aldurinn. Þá byrjaði ég að stunda ræktina af miklu kappi og fann hvað það gerði mér ótrúlega gott, bæði líkamlega og andlega að stunda hreyfingu og hef bara ekki hætt síðan. Á svipuðum tíma byrjaði ég líka í sálfræðimeðferð þar sem kom í ljós að ég var að glíma við mikinn kvíða og þannig blandast þetta einhvern veginn allt saman hjá mér. Ég sá hvað það er mikilvægt að rækta sjálfan sig, bæði líkamlega og andlega,“ sagði Telma Fanney í viðtali á Smartlandi 2022. 

Smartland óskar Telmu Fanney til hamingju með íbúðina! 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅