Rafrettukóngar keyptu raðhúsalengju í Vogunum
Auður Rán Kristjánsdóttir hefur fest kaup á raðhúsalengju í gegnum félag sitt. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is
Auður Rán Kristjánsdóttir forráðamaður félagsins A2411 ehf. hefur fest kaup á raðhúsalengju í Vogunum. Auður Rán er gift Snorra Guðmundssyni sem komst í fréttir eftir að hann og viðskiptafélagi hans, Sverri Þór Gunnarsson, oft kenndur við söluturninn Drekann, fengu skilorðsmundinn fangelsisdóm fyrir stórfelld tollalagabrot.
Raðhúsalengjan sem félag Auðar Ránar festi kaup á er með gólfsíðum gluggum í alrými, Danfoss stýrikerfi og aukinni lofthæð.
Hvert raðhús er 130 fm að stærð og var raðhúsalengjan reist í fyrra.
Heitur pottur fylgir hverju raðhúsi og er rafmagnshleðslustöð í hverju húsi. Félag Auðar Ránar greiddi 268.000.000kr. fyrir þessi þrjú raðhús.
Húsið við Frjóakur 7 í Garðabæ er í eigu Snorra Guðmundssonar og Auðar Ránar Kristjánsdóttur. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is
Keyptu höll á 220 milljónir
Auður Rán og Snorri hafa verið í allskonar fasteignakaupum síðustu ár. Árið 2022 festu þau kaup á einbýlishúsi við Frjóakur í Garðabæ og greiddu fyrir það 220.000.000 kr. Húsið keyptu þau eftir að hafa hagnast töluvert á sölu á rafsígarettum.
Smartland óskar Auði Rán til hamingju með raðhúsalengjuna!
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
