Svona setur þú heimilið í nýjan búning

Þetta er árstíminn þar sem við þráum að gera fínt hjá okkur og fá inn nýja orku. Samsett mynd

Kerti í nokkrum haustlitum koma með góða stemningu inn á heimilið. Þessi kerti eru frá Ferm Living og fást í Epal. Fjögur í pakka kosta 2.500 kr.


Vínrauðir tónar geta gjörbreytt heimilinu svo um munar. Þá er ekki bara verið að tala um að mála veggi í vínrauðum tónum heldur gæti einn stóll eða kerti verið hluti af því að hressa aðeins upp á stemninguna. Ef þú vilt ganga lengra þá veggfóðrarðu veggina. Haustið er tíminn til að kjarna sig á heimilinu og undirbúa sig fyrir veturinn. Það er ekki nóg að setja bara upp hámhorfsplan fyrir næstu mánuði. Það gæti verið nauðsynlegt að fá inn annan lit, ný kerti, eitt nýtt ljós eða bara skrautmun sem sker sig úr. Veggfóðrið frá artewalls fær hjartað til að slá örar en það fæst í versluninni Sérefni. Þar gætir þú líka keypt lakk og lakkað gamalt borð í vínrauðum lit.

Hans J. Wegner-stóll í vínrauðum lit fer vel í stofu. Hann fæst í Epal og kostar 598.000 kr.

Veggfóður gjörbreytir heimilinu. Hugsið ykkur ef þessi veggur hefði verið hvítur á litinn? Þá væri ekkert um að vera. Hér má sjá veggfóður frá artewalls sem selt er í Sérefni. Takið eftir hvað vínrautt borð og gultóna veggfóður er fallegt saman.

Loftljós frá Flamant kallar fram skemmtilega stemningu inni á heimili og getur gjörbreytt andrúmsloftinu. Ljósið kostar 265.000 kr.

Reflection Copenhagen-kertastjaki í koníakslit fer vel inni á heimili. Andrea Larsson hannaði kertastjakann sem fæst í Módern og kostar 44.900 kr.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅