Hrafnhildur seldi húsið á 159 milljónir

Hrafnhildur Helga Össurardóttir og Árni Hjaltason hafa selt einbýlishús sitt við Lokastíg. Smartland fjallaði ítarlega um húsið þegar það var auglýst til sölu. Húsið er einstaklega smekklega innréttað sem kemur kannski ekki á óvart því Hrafnhildur er dóttir Ingu Lindar Karlsdóttur, eiganda Skot Productions.

Húsið á Lokastíg er skráð 162 fermetrar og er ásett verð 172,9 milljónir. Húsið er steinsteypt hús sem var reist árið 1925. 

Hér má sjá mynd úr stofunni á Lokastíg 17.

Hér má sjá mynd úr stofunni á Lokastíg 17. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Húsið er á þremur hæðum en á miðhæðinni er glæsilegt opið eldhús, stofur og borðstofa. Eldhúsinnréttingin er með framhliðum frá Haf Studio og marmaraborðplötu. Stór eldavél frá SMEG passar vel inn í húsið. Það eru ekki bara innréttingar, málning og tækjabúnaður sem passa við sögu hússins heldur líka húsgögnin á heimilinu. 

Það er ekki amalegt að matbúa í þessu eldhúsi.

Það er ekki amalegt að matbúa í þessu eldhúsi. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Seldu húsið vegna breyttra aðstæðna

Hús Hrafnhildar og Árna var sett á sölu eftir að upp úr hjónabandi þeirra slitnaði. 

Nú hefur húsið verið selt. Kaupendur eru Edda Ingibjörg Gunnarsdóttir og Þorvaldur Lúðvíksson. Þau keyptu húsið á 159.000.000 kr. 

Edda er mikill fagurkeri og sagði frá því í viðtali á Smartlandi 2023 að hún hefði stíliserað nýjar íbúðir í Kópavogi en þá var hún komin í nám til Parísar. Þorvaldur starfar í Íslandsbanka. 

Gangurinn í húsinu við Lokastíg er flottur eins og sjá má á þessari ljósmynd. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅