Bragi og Aldís selja miðbæjarperluna

Læknanemarnir Bragi Aðalsteinsson og Aldís Eyja Axelsdóttir hafa komið sér vel fyrir í fallegri íbúð við Brávallagötu 48 í Reykjavík. Nú er íbúðin komin á sölu. Þetta er sannkölluð miðbæjarperla þar sem stutt er í allar áttir. 

Um er að ræða 72 fm íbúð sem er í húsi sem reist var 1937. 

Heimilið er smekklega innréttað en árið 2025 var eldhúsið gert upp með ljósgrárri innréttingu og er heillandi steinn á borðplötunum. Undirlímdur vaskur er í eldhúsinu og er helluborðið niðurfellt. 

Í íbúðinni er vel hannað eldhús sem er ljósgrátt með náttúrusteini. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Pláss er fyrir veglegt borðstofuborð og sófa í stofunni.

Pláss er fyrir veglegt borðstofuborð og sófa í stofunni. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Hver hlutur á sínum stað

Eldhúsið er opið inn í stofu þar sem pláss er fyrir stórt borðstofuborð, sófa og skrautmuni. Í stofunni eru String-hillur úr Epal og falleg listaverk. Vínrautt Flowerpot-ljós hangir yfir borðstofuborðinu og kallast það á við vínrautt Kartell borð. 

Baðherbergið er nýlega gert upp með dökkum flísum á veggjum og ljósum flísum á gólfi. Þar er speglaskápur með baklýsingu og upphengt salerni. 

Vínrautt Flowerpot-ljós hangir yfir borðstofuborðinu og kallast það á við Kartell-borðið sem er í sama lit. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Í íbúðinni eru upprunalegar innihurðar sem gefa íbúðinni sjarmerandi yfirbragð.

Í íbúðinni eru upprunalegar innihurðar sem gefa íbúðinni sjarmerandi yfirbragð. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Eins og sjá má er heildarmynd heimilisins heillandi og smart. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Brávallagata 48

Baðherbergið er smekklega innréttað með stórum spegli með baklýsingu.

Baðherbergið er smekklega innréttað með stórum spegli með baklýsingu. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Íbúðin er í blokkunum við Brávallagötu.

Íbúðin er í blokkunum við Brávallagötu. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅