Björg Hildur keypti 240 milljóna raðhús í Lundi

Björg Hildur Daðadóttir hefur fest kaup á raðhúsi í Kópavogi. Hún festi kaup á húsinu eftir að upp úr hjónabandi hennar og Jakobs Valgeirs Flosasyni slitnaði. Húsið er 223,3 fm að stærð og var reist 2013. Björg Hildur greiddi 240.000.000 kr. fyrir húsið. 

Húsið var ekki auglýst til sölu og keypti Björg það í skúffunni eins og sagt er. Það er á tveimur hæðum með bílskúr. Gólfhiti er í húsinu og síðir gluggar sem gerir það afar skemmtilegt. Útveggir íbúðarinnar eru einangraðir, múraðir og sandsparslaðir.

Ljósmynd/fasteingavefur.is

Björg Hildur keypti húsið af Öldu Þöll Vilhjálmsdóttur. 

Smartland óskar Björgu Hildi til hamingju með húsið! 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅