Birkir Karl selur íbúðina

Birkir Karl Sigurðsson og Birna Sif Árnadóttir hafa sett íbúðina sína á sölu. Samsett mynd

Birkir Karl Sigurðsson hlaðvarpsstjarna í Chess After Dark og Birna Sif Árnadóttir lögfræðingur hafa sett fallega íbúð sína í Kópavogi á sölu. Um er að ræða 104 fm íbúð í blokk sem reist var 2003. Ásett verð er 86.900.000 kr. 

Heimili Birkis Karla og Birnu Sifjar er vel skipulögð og með fallegu útsýni. Hún er björt og með stórum gluggum. 

Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting og dökkar borðplötur.

Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting og dökkar borðplötur. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Útgengi er út á svalir úr stofunni.

Útgengi er út á svalir úr stofunni. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með dökkum borðplötum og 10x10 sm flísum á milli efri og neðri skápa. Gott vinnurými er í eldhúsinu og mikið skápapláss. Borðkrókur er í eldhúsinu sem er að hluta til opið inn í stofu. 

Mínimalískur stíll einkennir íbúðina og hver hlutur á sinn stað. 

Af fasteignavef mbl.is: Lómasalir 12

Blokkin stendur á fallegum stað í Kópavoginum.

Blokkin stendur á fallegum stað í Kópavoginum. Ljósmynd/fasteignavefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅