Jónas Óli og Hildur selja KR-höll
Jónas Óli Jónasson og Hildur Ósk Sigurðardóttir hafa sett fallega íbúð sína í Vesturbænum á sölu. Samsett mynd
Hildur Ósk Sigurðardóttir gullsmiður og Jónas Óli Jónasson, stofnandi Stubbs og plötusnúður, hafa sett smekklega íbúð sína við Meistaravelli í Vesturbænum á sölu. Íbúðin er fullkomin fyrir alvöru KR-inga enda með útsýni yfir KR-völlinn. Ásett verð er 107 milljónir sem er nokkuð ljóðræn upphæð þegar hugsað er út í staðsetninguna.
Íbúð Hildar og Jónasar er 109 fermetrar og eru þrjú svefnherbergi í íbúðinni. Íbúðin er í fjölbýlishúsi sem var reist árið 1965 en búið er að gera upp íbúðina. Eldhúsið er með nýlegri hvítri innréttingu en eldhúsið er opið að hluta inn í stofu.
Þau Hildur og Jónas eru greinilega með gott auga fyrir fallegum hlutum og passa að allt passi vel saman. Stílhrein norræn hönnun kemur vel út á heimilinu. Hvítar Sjöur frá Arne Jacobsen passa vel við eldhúsið. Í stofunni er einnig Svanurinn eftir sama hönnuð.
Af fasteignavef mbl.is: Meistaravellir 35
Búið er að gera upp eldhúsið. Plássið við gluggann er nýtt á skemmtilegan hátt. Af fasteignavef mbl.is
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


