„Krafðist innborgunar upp á 150.000 kr. og lét sig svo hverfa“

Fagurkerinn Hulda Hvönn Kristinsdóttir fer sínar eigin leiðir þegar kemur að heimilinu, þar sem litir, mynstur og persónuleg smáatriði fá að njóta sín. mbl.is/Eyþór

Þegar fjölskyldan stækkaði ákváðu Hulda Hvönn Kristinsdóttir og sambýlismaður hennar að nýta fermetrana betur. Eldhúsið vék fyrir barnaherbergi og framkvæmdirnar reyndu bæði á þolinmæðina og traustið til þeirra sem fengnir voru til verksins.

„Ég er almennt hrifin af eldri íbúðum. Ég fíla ekki þessi alrými sem eru í flestum nýlegum íbúðum. Blokkin er byggð 1957 og íbúðin mjög hefðbundin fyrir þann tíma, sem mér finnst frábært. Þó að hún hafi verið í vel nothæfu ástandi þegar við fengum hana afhenta var ljóst að margt þyrfti að gera, bæði til að hámarka notagildi rýmanna og skapa það andrúmsloft sem við viljum hafa á heimilinu okkar,“ segir Hulda Hvönn Kristinsdóttir um íbúðina í Eskihlíð sem hún hefur undanfarin ár tekið í gegn ásamt sambýlismanni sínum.

Ferlið hefur verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt, en ekki gengið áfallalaust. Hulda segir hér frá framkvæmdagleðinni, óvæntum hindrunum og misjafnri reynslu af iðnaðarmönnum.

Hulda er 32 ára, fædd í Reykjavík en uppalin í Kópavogi frá þriggja ára aldri. Sambýlismaður hennar er Björn Aðils Kristjánsson, gjarnan kallaður Addi, og saman eiga þau 18 mánaða grallaraspóa, Hrafnkel Búa. Hulda á einnig 14 ára dóttur, Maríu Erlu, úr fyrra sambandi. Hún er með BS-gráðu í stærðfræði og stærðfræðimenntun og MS-gráðu í menntun framhaldsskólakennara með áherslu á stærðfræði. Hún hefur kennt stærðfræði við Verzlunarskóla Íslands síðan haustið 2020 og sinnt aðstoðar- og stundakennslu við Háskóla Íslands í hjástörfum síðan 2018.

„Auk þess að vera með mikla framkvæmdaveiru og hafa óbilandi trú á að ég geti gert þetta allt sjálf reyni ég að slaka á inn á milli með því að horfa á áhættuíþróttir á borð við pílukast og norðuramerísk Scrabble-mót á YouTube. Stundum legg ég jafnvel nokkrar Scrabble-flísar sjálf, þegar tími gefst. Vinir mínir lýsa mér sem adrenalínfíkli,“ segir Hulda þegar hún er beðin um að lýsa sér.

Og þá að íbúðinni.

Hvað réð því að þið völduð þessa íbúð?

„Við Addi fengum íbúðina okkar í Eskihlíðinni afhenta vorið 2020. Við keyptum hana aðallega út af staðsetningunni en við erum hér í göngufæri við Hlíðaskóla þar sem María Erla stundar sitt nám. Við vildum íbúð með að minnsta kosti tveimur svefnherbergjum og svo vorum við með eitt og annað á óskalistanum, eins og svalir og baðherbergi með glugga. Íbúðin tikkaði í öll þessi box þótt það sé ef til vill hæpið að kalla þessa syllu svalir en þar má þó geyma grillið,“ segir hún og hlær.

Eldhúsið var fært inn í stofu og gamla eldhúsinu breytt í unglingaherbergi. Þannig fékk fjölskyldan meira út úr fermetrunum. mbl.is/Eyþór

„Maður gat varla snúið sér eða þvegið á sér hárið án þess að rekast í“

Tvær stórar framkvæmdir hafa breytt íbúðinni töluvert frá því að fjölskyldan flutti inn. Fyrst var baðherbergið tekið í gegn og skipulagt upp á nýtt og síðar var eldhúsið fært inn í stofu.

„Við vildum fá sem mest út úr íbúðinni. Mikil verðbólga síðustu ára hefur gert það nánast ómögulegt að kaupa stærra húsnæði með góðu móti. Fyrstu alvöru framkvæmdirnar sem við réðumst í voru að rífa allt út úr baðherberginu og skipuleggja það upp á nýtt. Sturtuklefinn sem var þar fyrir var pínulítill, eitthvað um 80 x 80 cm, svo maður gat varla snúið sér eða þvegið á sér hárið án þess að rekast í. Til að koma fyrir „walk-in“-sturtu og upphengdu klósetti og fá um leið meira geymslupláss og stærri innréttingu þurftum við að færa bæði skolp- og vatnslagnir, sem er ekki auðvelt verkefni.

Þegar ég varð ólétt að syni okkar sumarið 2024 og þörf var á öðru barnaherbergi voru tveir valkostir í stöðunni ef við ætluðum ekki að flytja. Annars vegar að setja barnaherbergi í rýmið sem er merkt sem borðstofa á teikningu og er næststærsta rými íbúðarinnar, á eftir stofunni. Hins vegar að flytja eldhúsið í stofuna og útbúa barnaherbergi í gamla eldhúsinu.

Í mínum huga var ekki rökrétt að reka fjögurra manna fjölskyldu í íbúð með pínulítið eldhús en risabarnaherbergi. Því réðumst við í stóru framkvæmdirnar númer tvö, að færa eldhúsið inn í stofu,“ segir Hulda og bætir við: „Ég mæli almennt ekki með því að byrja í framkvæmdum meðan á meðgöngu stendur en ég mæli enn síður með því að standa í stórum framkvæmdum með ungbarn á heimilinu. Af tveimur slæmum kostum held ég því að það hafi verið rétt ákvörðun að koma sem flestu úr vegi áður en hann kom í heiminn.“

Fallegir munir, veggmynstur og plöntur skapa einstakt andrúmsloft í svefnherberginu hjá Huldu. mbl.is/Eyþór

Hulda og Addi hafa breytt heilmörgu á heimilinu en verkefnalistinn er enn langur.

Hvað hafið þið gert hingað til og hvað á enn eftir að gera?

„Úff, þegar stórt er spurt. Fyrir utan baðherbergið og flutning eldhússins, með öllu sem því fylgdi, höfum við skipt um allt gólfefni, málað alla fleti oftar en einu sinni og græjað unglingaherbergi í gamla eldhúsinu. Við höfum líka skipt um öll ljós, endurnýjað alla rofa og innstungur og innréttað sjónvarpsstofu í rýminu sem er merkt sem borðstofa á teikningunum. Þar komum við meðal annars fyrir ræstiskáp.

Svo finnst mér allt ákjósanlegra en sléttir, hvítir veggir. Ég er búin að mála tvær veggmyndir og mörg herbergi eru með einhvers konar veggfóðri, panil, skrautlistum eða blöndu af þessu. Ég var að ljúka við að flísaleggja forstofuna ásamt því að betrekkja veggina og setja upp hálfþiljur. Ég hafði aldrei notað flísasög áður en lét það svo sem ekki stoppa mig.

Eitthvað sem ég er minna spennt fyrir en þarf að gera er að skipta út hurðunum. Það er nú þegar búið að skipta um tvær og sú þriðja fer upp á næstu dögum. Það þarf líka sárlega að skipta út öllum opnanlegum fögum. Skemmtilegri verkefni á döfinni eru að setja upp einhvers konar skápakerfi inni hjá heimasætunni og græja minibar inni í stofunni.“

Hulda og Addi sinna framkvæmdunum að miklu leyti sjálf og hafa notið góðrar aðstoðar fjölskyldunnar. Þau láta þó fagfólk sjá um ákveðin verkefni.

„Feður okkar hafa oft verið okkur innan handar, enda báðir mjög handlagnir og gott að læra réttu handtökin af reyndari einstaklingum. Mæður okkar beggja hafa líka ósjaldan hlaupið undir bagga þegar umönnun barna og heimilis hefur vikið fyrir framkvæmdum. Við reynum að gera allt sem við getum sjálf. Sumu verður maður þó að treysta sérfræðingum fyrir. Ég ætla mér til dæmis ekki að færa skólplögn eða setja upp nýja rafmagnstöflu sjálf.“

Fallegar myndir og mynstrað veggfóður gefa heimilinu litríkan og persónulegan svip. mbl.is/Eyþór

„Heiðarlegir iðnaðarmenn eru ekki á hverju strái“

Tímaáætlanir hafa reynst Huldu áskorun í framkvæmdunum, en erfið samskipti við suma iðnaðarmenn hafa einnig sett strik í reikninginn.

Hvað hefur verið mest krefjandi við framkvæmdirnar?

„Mér kemur helst tvennt til hugar. Annars vegar það sem varðar tímastjórnun og væntingar um hversu langan tíma verkin taki. Lögmál Hofstadters segir að allt taki lengri tíma en maður heldur, jafnvel þótt maður geri ráð fyrir lögmáli Hofstadters. Sannari orð hafa aldrei verið sögð þegar kemur að framkvæmdum. Jafnvel þótt maður haldi að maður sé kominn með nægilega reynslu til að gera ráð fyrir mistökum og töfum er samt alltaf eitthvað ófyrirséð sem teygir tímarammann enn frekar.

Hins vegar er það að heiðarlegir iðnaðarmenn eru ekki á hverju strái. Ég hef unnið með mörgum iðnaðarmönnum síðustu ár og verð því miður að segja farir mínar ekki sléttar í þeim efnum. Ég hef að minnsta kosti einu sinni verið hreinlega rænd, þar sem ónefndur húsasmíðameistari krafðist innborgunar upp á 150.000 kr. og lét sig svo hverfa. Ég veit ekki hvers konar manneskja fær sig til þess að féfletta ólétta konu með ónýtan glugga. Þegar við höfðum loks samband við lögfræðing kom í ljós að hann hafði verið sviptur fjárræði í millitíðinni og ekkert hægt að aðhafast frekar. Þótt ég sé reyndar ekki lengur ólétt er glugginn enn ónýtur,“ segir Hulda og bætir við að þetta sé ekki eina atvikið þar sem hafa komið upp leiðindi.

Við fengum líka til okkar pípulagningameistara sem skilaði verkinu illa af sér og gerði hreinlega ekki það sem um var samið. Hann brást ókvæða við að vera beðinn um að laga fráganginn, vildi ekki heyra á það minnst að veita afslátt af upphæðinni og hótaði okkur öllu illu ef við greiddum ekki bæði umsamið tímakaup og ýmsa furðulega kostnaðarliði sem hann vildi hvorki sundurliða né gefa kvittanir fyrir.

Blessunarlega höfum við líka unnið með mjög faglegum og heiðarlegum iðnaðarmönnum, en ég bendi fólki þó á að hafa varann á, vinna heimavinnuna sína og spyrjast fyrir um viðkomandi áður en einhver er ráðinn til verksins.“

Baðherbergið hjá Huldu Hvönn og fjölskyldu var tekið alveg í gegn. Þessi mynd var tekin þegar framkvæmdir voru að hefjast. Ljósmynd/Aðsend

„Ég vil skapa fallegt heimili fyrir okkur sem búum hér í dag“

Þrátt fyrir hindranir og leiðindi hefur ferlið líka veitt Huldu mikla ánægju, ekki síst þegar hún sér afrakstur eigin vinnu. „Skemmtilegust er þessi upplifun að hafa áorkað einhverju, einhverju sem maður gerði sjálfur og getur verið stoltur af. Það er sérstaklega gaman að sjá árangur erfiðis síns og njóta afrakstursins. Það er erfitt að segja hvaða rými ég er ánægðust með. Það eru einstakir þættir í hverju herbergi sem ég er sérstaklega ánægð með. Ég elska kisuveggfóðrið í eldhúsinu, pálmaflísarnar á baðherberginu og skáphurðirnar inni hjá syninum, svo eitthvað sé nefnt.“

Aðspurð hvort hún myndi gera eitthvað öðruvísi ef hún byrjaði upp á nýtt segir Hulda að maður sé alltaf vitrari eftir á.

„Já, maður er alltaf vitrari eftir á, en þrátt fyrir að smáleg atriði mætti bæta erum við á heildina litið ótrúlega ánægð með þetta. Svo er smekkur manns líka bara sífellt að þróast. Eitthvað sem maður valdi fyrir nokkrum árum er ekki endilega það sem maður hefði valið í dag. Sumir fara þá leið að velja það hlutlausasta og áhættuminnsta til að lágmarka líkurnar á að finnast það ljótt seinna eða til að rýra ekki mögulegt endursölugildi eignarinnar.

Það á hins vegar ekki við mig persónulega. Sjálf vil ég ekki búa á heimili sem miðar að því að friðþa einhverja framtíðarútgáfu af mér eða, það sem verra er, einhvern óþekktan framtíðareiganda eignarinnar. Frekar vil ég skapa fallegt heimili fyrir okkur sem búum hér í dag, heimili sem bæði þjónar núverandi þörfum okkar og gleður skilningarvitin.“

Hulda þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hún er spurð hvað ferlið hafi kennt henni.

„Þolinmæði! Þolinmæði er dyggð sem mér er almennt ekki töm en þegar kemur að framkvæmdum, sérstaklega framkvæmdum þar sem maður lærir um leið og maður gerir, þá verður maður að vera þolinmóður. Það á bæði við um hversu langan tíma hlutirnir taka en einnig um að vera þolinmóður gagnvart sjálfum sér.

Mistök eru eðlilegur hluti af lærdómsferli, við stökkvum ekki fullmótuð úr höfði föður okkar eins og Aþena. Það tekur tíma að ná hæfni á nýju sviði.“

Hér er baðherbergið eftir að það var tekið í gegn.

Hér er baðherbergið eftir að það var tekið í gegn. mbl.is/Eyþór

Hvaða ráð myndir þú gefa öðrum sem eru að hugsa um að ráðast í miklar framkvæmdir á heimilinu?

„Áætlaðu tímann sem þú heldur að þetta muni taka. Þrefaldaðu hann. Þú munt samt sennilega vera lengur að en það.

Áætlaðu hvað framkvæmdirnar muni kosta. Tvöfaldaðu þá upphæð. Svo margir kostnaðarliðið eru ófyrirsjáanlegir, sama hversu vel þú skipuleggur.

Vertu nákvæmur í verklýsingum til iðnaðarmanna og hafðu þær skriflegar, í tölvupósti eða á blaði. Spurðu fyrirfram um kostnaðarliði eins og tímakaup með vsk., akstur, verkfæragjald, förgunargjald og fleira. Fáðu kvittun fyrir verkinu með sundurliðun. Ekki borga neitt fyrirfram. Ekki borga að fullu fyrr en verkinu er lokið á sómasamlegan hátt og allir verkþættir hafa verið uppfylltir.

Það er ótrúlegt hvað það gerir mikið að bjóða fólki við vinnu upp á kaffi og jafnvel eitthvað með því.

Mæla tvisvar. Mæla einu sinni í viðbót. Svo skera.

Þú munt heyja stríð við svifryk. Svifrykið mun sigra.“

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅