Þorleifur og Erna Mist selja íbúð með Bulthaup eldhúsi

Þorleifur Örn og Erna Mist hafa sett íbúðina við Sörlaskjól á sölu. Samsett mynd

Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata hafa sett einstaka útsýnisíbúð sína við Sörlaskjól á sölu. Íbúðin er 134 fm að stærð og er í húsi sem reist var 1951. 

Fallegt sjávarútsýni er úr íbúðinni sem er smekklega innréttuð. Í eldhúsinu eru sérsmíðaðar innréttingar frá Bulthaup sem eru óvenjulegar. Þær samanstanda af frístandandi eyju úr stáli sem er úti í miðju gólfi og tveimur stórum skápum sem rúma allt sem nútímafjölskylda þarfnast. Eldhúsið setur svip á íbúðina og færir hana upp um nokkur þrep hönnunarlega séð. 

Fiskibeinaparket er á gólfinu í stofu og eldhúsi og eru marmaraflísar í gangi. Einnig eru flísar á baðherbergi sem er nýlega uppgert. 

Heimili listahjónanna er skemmtilega sett saman. Þar má finna heillandi listaverk, hansahillur og skrautmuni sem njóta sín vel. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Sörlaskjól 94

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅