Þekkt kona handtekin fyrir peningaþvætti - Faðir hennar þekktur í fíkniefnaheiminum
433
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 15:30
Francisca Gabriela Morais da Rocha.
Francisca Gabriela Morais da Rocha, fyrrum landsliðskona Brasilíu í knattspyrnu, var handtekin á þriðjudag vegna gruns um peningaþvætti fyrir glæpasamtökin Comando Vermelho.
Morais, sem er 32 ára og gengur undir nafninu Gabi Morais, var handtekin í Fortaleza í Brasilíu. Lögregla handtók tugi einstaklinga í umfangsmiklum aðgerðum gegn samtökunum. Bróðir Morais var einnig handtekinn en faðir þeirra ku vera stórlax í fíkniefnaviðskiptum á svæðinu.
Morais hefur leikið með Corinthians og Internacional í Brasilíu, auk þess að hafa verið í brasilíska landsliðinu. Varð hún þá Suður-Ameríkumeistari U-20 ára liða á yngri árum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗