„Brást við með yfirlæti, pirringi og leiðindum“

Sigríður Á. Andersen gagnrýndi dómsmálaráðherra harðlega.

Sigríður Á. Andersen gagnrýndi dómsmálaráðherra harðlega. mbl.is/Karítas

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi dómsmálaráðherra harðlega á Alþingi í dag og sakaði hana um að hafa sýnt yfirlæti og pirring þegar Snorri Másson, samflokksmaður hennar, reyndi að ræða við hana um möguleika á að koma upp brottfararmiðstöð fyrir útlendinga utan Evrópu.

Sagði Sigríður ráðherrann hafa brugðist við fyrirspurn Snorra á Alþingi í gær með leiðindum í stað þess að ræða málið efnislega.

„Hæstvirtur dómsmálaráðherra brást við eins og hún gerir gjarnan af einhverju yfirlæti og einhverjum pirringi og með leiðindum í stað þess að ræða málið efnislega,“ sagði Sigríður undir liðnum störf þingsins.

Reyndi að eiga „vitrænt samtal“

Sigríður sagði Snorra hafa reynt að eiga „vitrænt samtal“ við dómsmálaráðherra um áform nokkurra Evrópuríkja um að koma upp brottfararmiðstöð í Rúanda fyrir útlendinga sem dveljast ólöglega í Evrópu.

Hún sagði forsætisráðherra áður hafa brugðist við fréttum af þessum áformum með mjög afdráttarlausum hætti og að Snorri hefði meðal annars viljað fá að vita hvort dómsmálaráðherra hefði undirbúið forsætisráðherra undir þau viðbrögð.

Að sögn Sigríðar hefði jafnframt verið reynt að fá fram efnislega umræðu um málið en án árangurs.

Brýnt að málin verði skoðuð

Sigríður sagði jafnframt að Miðflokkurinn teldi mikilvægt að skoða möguleika á samstarfi við önnur Evrópuríki um brottfararmiðstöð utan Evrópu.

Hún benti á að kostnaðarsamt gæti verið að koma upp slíkri miðstöð hér á landi fyrir tiltölulega fáa einstaklinga. Hagkvæmara kynni að vera að taka þátt í samstarfi við ríki á borð við Danmörku, Þýskaland, Holland, Grikkland og Austurríki.

„Hins vegar gæti það verið hagkvæmara einmitt að stökkva um borð í bát þessara líkt þenkjandi þjóða,“ sagði Sigríður.

Hún minnti á að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefði lagt til fyrir mörgum árum að slíkt fyrirkomulag yrði skoðað.

„Ég tel brýnt að þessi mál verði skoðuð og Miðflokkurinn mun leggja áherslu á að það verði gert í náinni framtíð,“ sagði Sigríður.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab