Hvað sögðu leiðtogarnir án orða?
Í sameiginlegri yfirlýsingu að loknum leiðtogafundinum í Shenzhen kom fram hvað forsetar Kína, Bandaríkjanna og Rússlands höfðu komið sér saman um. Framkoma Xi Jinpings, Donalds Trumps og Vladimírs Pútíns í samskiptum hver við annan kann þó að segja meira.
Þetta var í fyrsta sinn sem forsetar ríkjanna þriggja komu saman til þríhliða viðræðna. Fundurinn var skipulagður niður í smáatriði en leiðtogarnir komu hver fram með sínum hætti, að sögn Gábors Holch, ráðgjafa í forystu og samskiptum milli menningarheima, sem starfar í Sjanghæ.
„Mennirnir sem við sáum í dag fara auðvitað með vald. Allt sem þeir gefa til kynna án orða er birtingarmynd þess valds,“ sagði Holch í samtali við AFP.
Holch sagði Trump eiga auðvelt með að koma fram á óformlegan hátt. Xi hefði mætt honum af mikilli vinsemd og komið fram við hann sem jafningja, eftir því sem ólíkur framkomustíll þeirra leyfði.
Í yfirlýsingu fundarins, sem kínverska ríkisfréttastofan Xinhua birti, hétu leiðtogarnir því að standa vörð um alþjóðlegt öryggi. AFP
Trump vék stundum frá handritinu
Þríhliða viðræðurnar fóru fram á Kylin Villa-svæðinu í Shenzhen samhliða árlegum leiðtogafundi Efnahagssamstarfs Asíu- og Kyrrahafsríkja (APEC). Holch sagði að á slíkum efnahagsfundi réði styrkur ríkjanna miklu um þá virðingu og það vægi sem leiðtogum þeirra væri sýnt. Að hans mati stóð Rússland hinum ríkjunum tveimur langt að baki að því leyti.
Í yfirlýsingu fundarins, sem kínverska ríkisfréttastofan Xinhua birti, hétu leiðtogarnir því að standa vörð um alþjóðlegt öryggi. Ríkin hygðust auka framleiðslu og framboð á unnum olíuafurðum og eiga viðræður um hvernig draga mætti úr hættu tengdri kjarnavopnum.
Leiðtogarnir beindu jafnframt spjótum sínum að Alþjóðlega sakamáladómstólnum og sögðu að hann og sambærilegar stofnanir mættu ekki misbeita valdi sínu.
Fjölmiðlar fengu að fylgjast með upphafsorðum leiðtoganna áður en viðræðurnar héldu áfram fyrir luktum dyrum.
„Trump skar sig úr. Hann vék stundum frá handritinu, náði augnsambandi og ávarpaði alla viðstadda. Hann leit upp af blöðunum og beindi orðum sínum sérstaklega til hinna tveggja,“ sagði Holch.
Pútín hélt sig við sitt handrit að sögn Holch og tók jafnvel heyrnartólið úr eyranu á meðan hann talaði. „Hann vildi einbeita sér alfarið að ræðunni sem hann var að lesa upp.“
Örlaði á brosi hjá Xi
Xi virtist mun afslappaðri í viðræðunum í dag en við hátíðarmóttökuna í gær, að sögn Holch. Hann taldi líklegt að Xi liði betur þegar rætt væri um viðskiptamál en í félagslegum mannfagnaði.
Að mati Holch var Xi að þessu leyti dæmigerður asískur þjóðarleiðtogi. Hann gæfi ýmislegt til kynna með svipbrigðum sínum, þótt þau væru vart greinanleg. Stundum örlaði á brosi eða hann hleypti örlítið brúnum eitt augnablik.
„Ég held að Trump hafi verið minna kumpánlegur en við bjuggumst við og kannski minna en hinir tveir bjuggust við,“ sagði Holch. Að hans mati kom Trump fram með yfirbragði ríkismanns, bæði í því sem hann sagði og hvernig hann bar það fram, allt niður í tónfallið.
Samskipti leiðtoganna í vikunni hafa vakið umræður á netinu þar sem fólk hefur rýnt í hverja hreyfingu þeirra. Xi og Trump föðmuðust stuttlega á flugvellinum í Shenzhen. Trump aðstoðaði einnig Xi við að stíga á rúllustiga og ávarpaði Pútín með orðunum „vinur minn“ þegar þeir tókust í hendur.
Hringborðið hafði táknræna merkingu
Leiðtogarnir sátu við stórt, hringlaga borð úr dökkum viði í rúmgóðum móttökusal þar sem hátt var til lofts. Bleik blóm prýddu opið í miðju borðsins.
„Í kínverskri menningu er rík hefð fyrir því að velja hringlaga form þegar skapa á samhljóm,“ sagði Holch.
Hann sagði borðið hafa haft sterka táknræna merkingu og að blómin í miðjunni hefðu staðið fyrir náttúruna. „Mér fannst þetta því mjög vel valið.“
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
