Andri Lucas á lista með Harry Kane
Enski knattspyrnumaðurinn Harry Kane varð markahæstur í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar sem lauk á dögunum.
Enski landsliðsfyrirliðinn skoraði átta mörk í sex leikjum en íslenski landsliðsframherjinn Andri Lucas Guðjohnsen er í öðru sæti listans.
Íslenski landsliðsframherjinn skoraði sex mörk í sex leikjum líkt og þeir Rasmus Höjlund, Viktor Gyökeres, Troy Parrott og Erling Haaland.
Íslenska liðið hafnaði í efsta sæti 4. riðils C-deildarinnar með 14 stig af 18 mögulegum og leikur í B-deild Þjóðadeildarinnar á næsta keppnistímabili.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
