5,5 milljarðar tapast út af einu skipi
Rósa Guðbjartsdóttir segir mikla peninga hafa farið forgörðum vegna innviðagjalds á skemmtiferðaskip. mbl.is/Karítas
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að áætlað tekjutap vegna þess að eitt stórt skemmtiferðaskip hafi hætt að sigla til Íslands nemi 5,5 milljörðum króna á ári. Hún gagnrýnir harðlega fyrirhugaða aukna skattlagningu ferðaþjónustunnar og segir afleiðingar innviðagjalds á skemmtiferðaskip þegar farnar að koma í ljós.
Þetta kom fram í ræðu Rósu á Alþingi í dag, undir liðnum störf þingsins, þar sem hún vísaði til upplýsinga sem hún hafði fengið um skemmtiferðaskip sem áður kom reglulega til landsins en hefur nú hætt Íslandsferðum.
„Ég hef upplýsingar um eitt af stærstu skipunum sem hingað kom en hefur hætt ferðum til landsins. Skipið tekur 3.200 farþega, stoppaði alls 40 sinnum á ári í íslenskum höfnum, einkum Reykjavík, Akureyri og Ísafirði,“ sagði Rósa.
Mikið tapast í þjónustutekjum
Að sögn Rósu hefur brotthvarf skipsins haft veruleg fjárhagsleg áhrif, bæði á sveitarfélög og fyrirtæki sem þjónustuðu skipið og farþega þess.
Hún sagði að áætlað væri að hafnargjöld upp á 500 milljónir króna hefðu tapast á ársgrundvelli, auk 500 milljóna króna í virðisaukaskatt af viðskiptum farþega.
Þá hefðu um 1,3 milljarðar króna tapast í þjónustutekjum þeirra sem sinntu skipinu og tekjur hótela og flugfélaga hefðu dregist saman um á þriðja milljarð króna.
„En það hefur verið metið að alls hafi 5,5 milljarðar króna tapast á ársgrundvelli við það að þetta eina stóra skip hætti að koma til landsins og fyrir liggur að fleiri stór skip hyggjast hætta Íslandsferðum,“ sagði Rósa.
Flýtir einkennt málið
Rósa rifjaði jafnframt upp að fyrrverandi ráðherra hefði við umræður á Alþingi í gær viðurkennt að mistök hefðu verið gerð við innleiðingu innviðagjaldsins og að flýtir hefði einkennt aðgerðina.
Hún sagði afbókanir skemmtiferðaskipa hafa byrjað að berast um leið og gjaldið var boðað og að alvarlegar afleiðingar væru nú að koma í ljós.
Rósa benti á að um 2.200 fyrirtæki í landinu störfuðu við þjónustu við ferðamenn og að fjöldi frumkvöðla, bæði stórra og smárra, hefði atvinnu sína af greininni.
Þrátt fyrir það væri stefnt að frekari skattlagningu ferðaþjónustunnar.
„En það á að halda áfram að skattleggja ferðamenn. Á bara að skella skollaeyrum við þessari staðreynd? Má ekki læra af þessum mistökum?“ spurði Rósa að lokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗