Fara fram á aðgerðir vegna mengunar frá Hveragerði

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 15:00

Frá Hveragerði. Mynd: Ernir

Náttúruverndarstofnun hefur farið fram á að Hveragerðisbær grípi til aðgerða vegna mengunar í Varmá, sem rennur rétt framhjá bænum, og Þorleifslæk sem er neðri hluti árinnar og mikið nýttur fyrir stangveiðar.

Bréf stofnunarinnar til bæjaryfirvalda var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisnefndar á þriðjudag. Þar segir að borist hafi ábending frá formanni Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar vegna skólpmengunnar frá Hveragerðisbæ og klórmengunar frá sundlaug bæjarins sem hafi áhrif á Varmá og Þorleifslæk. Formaður veiðifélagsins bendi á í erindi sínu að Varmá og nágrenni árinnar stafi ógn af þessari mengun og að umrætt svæði sé á náttúruminjaskrá og beini því erindi sínu til Náttúruverndarstofnunar.

Náttúruverndarstofnun bendir á að svæðið sé á C-hluta náttúruminjaskrár og þau svæði séu skilgreind sem náttúruverndarsvæði samkvæmt lögum um náttúruvernd. Samkvæmt lögunum hafi Náttúruverndarstofnun yfirumsjón með náttúruverndarsvæðum og beri ábyrgð á eftirliti með þeim nema annað sé tekið fram í lögum. Réttaráhrif svæða sem skráð séu á núgildandi náttúruminjaskrá fari eftir ákvæðum eldri náttúruverndarlaga þar sem skráin hafi tekið gildi í gildistíð þeirra. 

Vernd

Í bráðabirgðaákvæði núgildandi náttúruverndarlaga sé vísað til réttaráhrifa eldri laga vegna skrárinnar. Réttaráhrif samkvæmt eldri náttúruverndarlögum séu þau að leita skuli umsagnar og tilkynna Umhverfisstofnun (nú Náttúruverndarstofnun) um framkvæmdir þar sem hætta sé á að spillt verði náttúruminjum á náttúruminjaskrá. Þá kunni framkvæmdirnar að vera tilkynningaskyldar samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Segir stofnunin að í eftirliti hennar í málum sem þessum felist í að bregðast við ábendingum um að svæði á náttúruminjaskrá stafi ógn af athöfnum eða framkvæmdum sem ógni verndargildi þess. Einnig að upplýsa þar til skylda aðila, landeigendur og stjórnvöld sem fari með skipulagsvald á svæðinu um ástand svæðisins og hugsanlega ógn sem stafi af framkvæmdum eða athöfnum á eða í nágrenni svæðisins. Umhverfisstofnun, nú Náttúruverndarstofnun, hafi áður brugðist við ábendingum frá Veiðifélagi Varmár og Þorleifslækjar og krafið sveitarfélagið um úrbætur í fráveitumálum. Náttúruverndarstofnun vilji með þessu erindi upplýsa Hveragerðisbæ um þessa nýju ábendingu og fara fram á að allt verði gert til að koma í veg fyrir að verndargildi svæðisins raskist ekki.

Segir í fundargerð skipulags- og umhverfisverndar að umrætt bréf Náttúruverndarstofnunar hafi borist í febrúar síðastliðnum. Umhverfisfulltrúi hafi á fundinum farið yfir stöðu mála varðandi úrbætur sem hafi ýmist verið gerðar eða séu á döfinni. Nefndin felur honum að svara erindi Náttúruverndarstofnunar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab