Mígandi tap Manchester United
Manchester United tapaði 18,1 milljón punda á fyrstu þremur mánuðum rekstrarársins, samanborið við 6,6 milljóna punda tap á sama tímabili í fyrra.
Tekjur félagsins jukust þó um fjögur prósent og námu 146 milljónum punda. Skuldirnar jukust hins vegar um 125 milljónir dollara milli ára og nema nú 775 milljónum dollara, eða um 590 milljónum punda.
United hefur nú skilað tapi sjö rekstrarár í röð og er staðan einnig slæm inni á vellinum. Liðið situr í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir aðeins einn sigur í tíu leikjum.
Mauricio Pochettino tók nýverið við sem stjóri af Michael Carrick og stýrir sínum fyrsta leik gegn Liverpool á sunnudag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗