Greenfish ræður sex nýja starfsmenn

Hér má sjá þau Jón Helga Sigurðsson, Kára Hrafn Guðmundsson, Fönn Harðardóttur og Andra Stein Ásbjörnsson. GreenFish átti ekki myndir af þeim Moolman van aarde og Christian Alcaraz Ortez. Ljósmynd/Samsett/GreenFish

Íslenska tæknifyrirtækið GreenFish hefur ráðið sex nýja starfsmenn. Í tilkynningu eru mannaráðningarnar sagðar styðja við hraðan vöxt fyrirtækisins.

„Moolman van Aarde, Christian Alcaraz Ortez, Andri Steinn Ásbjörnsson, Kári Hrafn Guðmundsson, Jón Helgi Sigurðsson og Fönn Harðardóttir hafa á undanförnum mánuðum gengið til liðs við GreenFish,“ segir þar.

„Ráðningarnar styrkja vöruþróun, þjónustu við viðskiptavini og sölu á alþjóðamörkuðum.“

Fram kemur að GreenFish þrói gervigreindarlausnir fyrir sjávarútveg og sé í dag meðal fremstu fyrirtækja heims á sínu sviði.

Viðskiptavinir fyrirtækisins eru sagðir í yfir tuttugu löndum og að í daglegri notkun á öllum helstu hafsvæðum heims séu yfir hundrað gervigreindarmódel.

Kári Hrafn Guðmundsson hefur verið ráðinn sem Customer Success Manager hjá GreenFish. Hann starfaði í þrjú ár hjá Evolv, fyrst við þróun sjálfvirknilausna fyrir mörg þekktustu fyrirtæki landsins og síðar sem teymisstjóri. Þar áður var hann söluverkfræðingur hjá Marel. Kári er með BSc-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Jón Helgi Sigurðsson hefur gengið til liðs við gervigreindarteymi GreenFish. Hann starfaði sem vélnámsverkfræðingur hjá Ferritico í Stokkhólmi og áður hjá NOVO Energy (Volvo Cars) í Gautaborg. Jón er með meistaragráðu í vélnámi frá KTH í Stokkhólmi og BSc-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.

Moolman van Aarde verður svæðisstjóri GreenFish í Afríku. Hann kemur frá Grupo Iberconsa, einu stærsta sjávarútvegsfélagi Spánar. Þar áður starfaði hann hjá McKinsey & Company í Brussel og Jóhannesarborg og hjá Sasol Mining.

Christian Alcaraz Ortez hefur gengið til liðs við söluteymi GreenFish og mun sinna viðskiptaþróun í Suður-Ameríku. Hann starfaði í áratug hjá Baja Aqua Farms í Mexíkó, síðast sem veiðistjóri. Christian stundaði nám við Universidad Autónoma de Baja California.

Andri Steinn Ásbjörnsson hefur einnig gengið til liðs við söluteymi GreenFish. Hann starfaði við ráðgjöf hjá Arion banka og þar áður hjá Samskipum. Andri er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Fönn Harðardóttir kemur inn í hugbúnaðarteymi GreenFish sem forritari. Hún lauk í vor BSc-gráðu í tölvunarfræði með áherslu á gervigreind frá Háskólanum í Reykjavík, þar sem hún starfaði jafnframt sem aðstoðarkennari.

Haft er eftir Sveini Sigurði Jóhannessyni, framkvæmdastjóra GreenFish, að fyrirtækið hafi „vaxið ansi hratt“ á undanförnum mánuðum og fagni öflugum liðstyrk til að styðja enn frekar við áframhaldandi vöxt.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab