Lionel Messi orðaður við endurkomu
Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi gæti snúið aftur í argentínska landsliðið sem hluti af þjálfarateymi liðsins.
Það er TNT Sports sem greinir frá þessu en Messi, sem er 39 ára gamall, lagði landsliðsskóna á hilluna á dögunum.
Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning á dögunum en hann hefur stýrt liðinu samfleytt frá árinu 2018.
Scaloni hefur mikinn áhuga á því að fá Messi í þjálfarateymið en hann leikur með Inter Miami í bandarísku atvinnumannadeildinni í dag.
Messi lék alls 208 A-landsleiki fyrir Argentínu á árunum 2005 til ársins 2026 og skoraði í þeim 126 mörk en hann varð heimsmeistari með liðinu árið 2022 og tvívegis Suður-Ameríkumeistari.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗