Covid-hópsýking á Landspítala virðist í rénun
Hópsýking af völdum Covid-19 sem kom upp á deild á Landspítala fyrr í nóvember virðist vera í rénun. Covid-19-greiningum fækkaði á landsvísu í síðustu viku, 9.–15. nóvember, samkvæmt vikulegu yfirliti sóttvarnalæknis.
Flest jákvæð Covid-19-sýni komu sem fyrr frá Landspítala. Tilfellin greindust víða á spítalanum og fleiri á bráðamóttökum en á legudeildum. Vikuna á undan greindust 32 með Covid-19 á landinu og tengdist tæpur helmingur þeirra hópsýkingunni.
Engin ný inflúensutilfelli á deildinni
Inflúensugreiningum fjölgaði lítillega á milli vikna, úr 27 í 30. Helmingur þeirra sem greindust í síðustu viku greindist við komu á bráðamóttöku og sjö greindust utan Landspítala. Ekkert nýtt tilfelli greindist á þeirri deild spítalans þar sem hópsýking af völdum inflúensu kom upp vikuna á undan. Hún kom upp á annarri deild en Covid-hópsýkingin.
Fyrsta RS-veirusýking vetrarins greindist í síðustu viku hjá einstaklingi sem er 65 ára eða eldri. Greiningum á öðrum öndunarfæraveirum fjölgaði einnig. Fleiri sýni voru rannsökuð en vikuna á undan og hlutfall jákvæðra sýna var svipað. Að mati sóttvarnalæknis styður það að tilfellum hafi í raun fjölgað.
Svipaður fjöldi lagðist inn
Svipaður fjöldi sjúklinga lagðist inn á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingu og vikuna á undan. Flestir þeirra greindust með Covid-19, inflúensu eða rínóveiru.
Tæp 45% fólks sem er 60 ára eða eldra hafa verið bólusett gegn inflúensu í haust. Markmið sóttvarnalæknis er að bólusetja að minnsta kosti 70% fólks í aldurshópnum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗