Slíta samstarfinu og óljóst hvernig Besta deildin mun líta út

Knattspyrnudeildir Grindavíkur og Njarðvíkur hafa sameiginlega ákveðið að hætta samstarfi um meistaraflokk kvenna. Liðið hefur leikið undir merkjum Grindavíkur/Njarðvíkur síðastliðin tvö ár. 

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu félaganna. Samstarfið hefur verið einstaklega farsælt. Á fyrsta tímabilinu fór liðið upp úr Lengjudeildinni og tryggði sér sæti í Bestu deild kvenna. Á öðru árinu hélt liðið sæti sínu meðal þeirra bestu og fór alla leið í bikarúrslit.

Grindavík hefur ákveðið að leika í 2. deild kvenna næsta sumar undir eigin merkjum. Njarðvík býðst að halda sætinu í Bestu deild en ekki er víst að félagið taki því. Fari svo að Njarðvík afþakki sæti má ætla að Haukar, sem enduðu í 3. sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð, fari upp í efstu deild.

Yfirlýsing frá knattspyrnudeildum Grindavíkur og Njarðvíkur:

Knattspyrnudeildir Grindavíkur og Njarðvíkur hafa sameiginlega ákveðið að hætta samstarfi um meistaraflokk kvenna. Liðið hefur leikið undir merkjum Grindavíkur/Njarðvíkur síðastliðin tvö ár. 

Samstarfið hefur verið einstaklega farsælt. Á fyrsta tímabilinu fór liðið upp úr Lengjudeildinni og tryggði sér sæti í Bestu deild kvenna. Á öðru árinu hélt liðið sæti sínu meðal þeirra bestu. Hápunkturinn var bikarúrslitaleikurinn á Laugardalsvelli, sem tapaðist naumlega eftir frábæra frammistöðu. Árangurinn sýnir þá vinnu, samheldni og metnað sem leikmenn, þjálfarar, stjórnir og sjálfboðaliðar beggja félaga lögðu í verkefnið. 

Grindavík hefur ákveðið að snúa heim með liðið sitt. Á næsta keppnistímabili leikur meistaraflokkur kvenna undir nafni Grindavíkur, á heimavelli í Grindavík, og tekur þátt í 2. deild kvenna. Félagið lítur á þetta sem mikilvægt skref í að halda sjó og vera tilbúin að hefja uppbyggingu knattspyrnunnar og samfélagsins í Grindavík. 

Njarðvík hefur rétt til að taka sæti í Bestu deild kvenna frá og með keppnistímabilinu 2027. Stjórn knattspyrnudeildar Njarðvíkur vinnur nú að því að skoða næstu skref og meta þá möguleika sem staðan býður upp á, með hagsmuni félagsins að leiðarljósi. 

Félögin þakka öllum leikmönnum, þjálfurum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum og stuðningsfólki fyrir þeirra framlag síðustu tvö ár. Stuðningurinn úr báðum bæjarfélögum hefur verið ómetanlegur. Við kveðjum samstarfið með stolti og þakklæti og óskum hvort öðru alls hins besta í framhaldinu. 

Knattspyrnudeild Grindavíkur 

Knattspyrnudeild Njarðvíkur 

19.11.2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab