Óvenjuleg tíðindi frá Bláskógabyggð - Staðan betri en reiknað var með
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 14:30
Skrifstofur Bláskógabyggðar eru í félagsheimilinu Aratungu í Reykholti. Mynd: Skjáskot/Já.is
Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggð í gær var lagt fram yfirlit yfir rekstur sveitarfélagsins á fyrstu 9 mánuðum ársins. Segja má að í yfirlitinu felist tíðindi sem teljist óvenjuleg á Íslandi um þessar mundir en rekstur Bláskógabyggðar hefur gengið betur en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2026. Hins vegar hefur rekstur margra annarra sveitarfélaga gengið verr en búist var við í fjárhagsáætlunum og öll fjölmennustu sveitarfélög landsins hafa verið rekin með halla á árinu.
Í fundargerð sveitarstjórnar Bláskógabyggðar segir að yfirlitið fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026 sýni jákvæða rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta að fjárhæð 209 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var reiknað með jákvæðri niðurstöðu upp á 112,4 milljónir króna. Rekstrarniðurstaðan er því 96,6 milljónum betri en áætlað var. Minna ber á að A-hluti er sjálfur sveitarsjóðurinn en B-hluti félög eða fyrirtæki í eigu Bláskógabyggðar.
Rekstrartekjur A- og B-hluta námu samtals um 2,3 milljörðum, en rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum, voru rétt undir 2 milljörðum. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 115,6 milljónir króna, sem er 11,5 milljónir umfram áætlun.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 35,6 milljónir króna, en áætlun gerði ráð fyrir 21,7 milljóna jákvæðri niðurstöðu. A-hluti er því um 13,9 milljónum yfir áætlun.
Jafnvægi
Handbært fé frá rekstri nam 703,7 milljónum á tímabilinu hjá A- og B hluta. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu um 909 milljónum. Tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 400 milljónir, en afborganir langtímalána námu um 138,2 milljónum. Skuldir A- og B-hluta hafa hækkað á þessum fyrstu 9 mánuðum ársins sem nemur um 500 milljónum en virði eigna hefur hækkað um svipaða upphæð.
Handbært fé í lok september var 224,6 milljónir. Heildareignir sveitarfélagsins voru 5,297 milljarðar króna í lok september. Eigið fé nam 2,395 milljörðum og skuldir og skuldbindingar samtals 2,9 milljörðum.
Í sameiginlegri bókun sveitarstjórnar segir að árshlutayfirlitið sýni að rekstur samstæðu sveitarfélagsins sé í góðu jafnvægi eftir fyrstu níu mánuði ársins og rekstrarniðurstaða A- og B-hluta umtalsvert betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrartekjur séu undir áætlun, en á móti vegi að rekstrargjöld séu einnig lægri en áætlað var, sem hafi jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna. Á sama tíma hafi fjárfestingar aukist verulega og handbært fé lækkað frá miðju ári. Mikilvægt verði að fylgjast áfram vel með þróun rekstrarkostnaðar, fjárfestingum og lausafjárstöðu sveitarfélagsins á síðasta ársfjórðungi.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗