Stefnir í verkfall: Fundur stendur yfir
Samninganefndir Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair sitja á kjarafundi sem stendur en að óbreyttu mun verkfall flugmanna er sinna leiguflugi fyrir Icelandair.
Með leiguflugi er hér átt við flug þar sem Icelandair eða Loftleiðir leggja til flugvél og eftir atvikum áhöfn fyrir annan aðila sem selur flugþjónustuna áfram.
Nær bæði til farþega- og fraktflugs
Verkfallið nær bæði til farþega- og fraktflugs, að því gefnu að brottfarar- og áfangastaðir séu utan Íslands og þriðji aðili annist sölu sæta eða fraktrýmis.
Leiguflugið hefur ekki síst nýst Icelandair til að vega á móti árstíðasveiflum. Þannig eru flugvélar leigðar út, gjarnan með áhöfn, í hin ýmsu verkefni um allan heim.
Að óbreyttu hefst verkfallið rétt eftir miðnætti annað kvöld.
Lára Sif Christiansen framkvæmdastjóri FÍA segir að samninganefndir sitji á fundi en gefur ekki upp hvort eitthvað færist í átt að samkomulagi á milli samninganefndanna.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗