Róandi að skoða bílaauglýsingar

„Ég er stundum með smá dellu,“ segir Leifur Ýmir sem veltir bílum fyrir sér á sýningu í Neskirkju við Hagatorg sem stendur til 22. nóvember. mbl.is/Karítas

Bílar eru í forgrunni samnefndrar sýningar Leifs Ýmis Eyjólfssonar sem nú stendur yfir í Neskirkju. Þar má sjá tvær nýjar verkaraðir, samtals 72 verk, og eina sjálfsmynd.

„Ég er stundum með smá dellu en það getur verið mjög róandi fyrir taugakerfið að skoða bílaauglýsingar á kvöldin og velta fyrir sér hvað bíll eyðir miklu og svona og láta sig dreyma. Ég hef ekki mikið vit á bílum en mér finnst gaman að tala um þá og hlusta á fólk tala um bílana sína.

Sýningin byggist á gamalli hugmynd sem ég er búinn að vera að veltast um með og þurfti bara að drífa í þessu. Í fyrstu var ætlunin að fá góða yfirsýn yfir allar helstu bílategundir en síðan breyttist ferlið í sjálfsgreiningu þar sem ég hef reynt að átta mig á hvernig bílamaður ég er. 

Önnur verkaröðin er sett fram eins og bílaauglýsingar, eins konar portrett af þeim bílum sem ég hef átt og þeim sem ég hef verið að velta fyrir mér.

Ég fann að maður kemst aldrei að endanlegri niðurstöðu um hvernig bíl mann langar í og það er allt í lagi,“ segir Leifur Ýmir um tilurð sýningarinnar.

"Önnur verkaröðin er sett fram eins og bílaauglýsingar, eins konar portrett af þeim bílum sem ég hef átt og þeim sem ég hef verið að velta fyrir mér." mbl.is/Karítas

Líka töff að vera praktískur

Bíll getur verið nytjahlutur og stöðutákn. Hvernig lítur þú á bílinn?

„Já, það er rétt. Ég lít bæði praktískum augum á bílinn og líka rómantískum. Ég veit ekki hversu mikið stöðutákn hann er lengur þegar annar hver maður er á hvítri Teslu. Bíll má vera töff. Það kostar sitt að vera flottur á því en svo er líka töff að vera praktískur.

Ég held að það sé betra að velja bíla af rómantískum ástæðum en praktískum og það verður að vera smá vesen. Mér finnst sorglegt hvað við erum fljót að endurnýja bílana okkar. Ég reyni að sjá fegurðina í nýjum bílum en veit ekki hvort sparnaður sé nógu góð ástæða til að kaupa sér nýjan rafmagnsbíl. Það er sama hvernig maður reiknar þetta, maður kemur alltaf út í mínus.

Mér finnst stundum gaman að keyra. Það hlýtur að vera mjög mikilvægt að keyra. Mikið frelsi að fara á rúntinn. Mig langar í jeppa og mig langar líka að labba meira. Ég kenni bara borgarskipulaginu um hversu lítið ég labba.

Það kemur fyrir að ég pæli i hjóli en svo var eitthvað svo kalt og ég þarf líka alltaf að vera fara í búðina að sækja kleinur.

Ég er mjög tvístraður í afstöðu minni gagnvart einkabílnum. Eins og flestum höfuðborgarbúum finnst mér skemmtilegast að fara á rúntinn ca. korter i fjögur. Þá er svo mikil stemming, allir að sýna bílana sína og sjá aðra bíla. Svo er líka gott að nota tímann í umferðinni til að bryðja tyggjó og taka nokkrar öndunaræfingar. Hlusta á útvarpið og hringja eitthvað í erindisleysu.“

"Ég held að það sé betra að velja bíla af rómantískum ástæðum en praktískum og það verður að vera smá vesen." mbl.is/Karítas

Ætlaði að eiga Skoda Fabia að eilífu

Er sýningin gagnrýni á neyslumenningu?

„Nei. Ég keypti einu sinni rauðan Skoda Fabia Station '92-módel, eingöngu af fagurfræðilegum ástæðum, og ætlaði að eiga hann að eilífu. Sérstaklega þar sem hann var með klukku í stað snúningsmælis. Þegar ég var nýkominn með lyklana og keyrði af stað glaður í bragði hrundi kúplingin ofan í götuna. Ég var fljótur að láta laga það en svo fór viðgerðakostnaðurinn stigvaxandi þar til ég lét draga hann í pressuna.“ 

mbl.is/Karítas

Hversu mikilvægur er húmor í verkunum þínum?

„7,5 af 10. Ég hugsa að það sé almennt gott að temja sér ákveðinn grallaraskap. Húmor er þó ekki endilega útgangspunktur hjá mér í verkunum. En eitthvað má verða fyndið og jákvætt ef það gerist.

Kannski er skárra að láta gera grín að sér en að láta skamma sig. Það er vont að missa húmorinn. Sumt er einfaldlega oft erfitt að horfast í augu við án þess að hafa húmorinn með sér í liði. Því held ég að margir noti húmor óspart og ég þar á meðal - nota húmorinn sem tól til þess að reyna skilja betur heiminn og okkur sjálf.

Það getur verið leið til þess að stinga á kýli og aulahúmor stendur alltaf fyrir sínu.“

Hvernig myndirðu lýsa þér sem listamanni?

„Það er erfið spurning. Ég er búinn að vera í töluverðri sjálfsskoðun í tengslum við sýninguna og niðurstaðan var sú að ég er Lödu-maður í grunninn, Subaru í hjarta, keyri um á VW en langar í Toyotu.“

Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Karítas Sveina Guðjónsdóttir

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab