Fallegt framtak til heiðurs Schumachers

Michael Schumacher, einn besti akstursíþróttamaður allra tíma, verður heiðraður af fyrrverandi liði sínu Ferrari um næstu helgi.

Formúla 1 fer fram á Monza á Ítalíu, heimavelli Ferrari, um næstu helgi og verða þá 20 ár liðin frá fyrsta sigri Þjóðverjans hjá Ferrari.

Til að heiðra Schumacher mun Ferrari skarta sérstöku útliti, sama útliti og þegar Schumacher var ökumaður liðsins.

Schumacher varð sjö sinnum heimsmeistari á árunum 1996 til 2006 og er af mörgum talinn sá besti frá upphafi.

Sá þýski lenti í slæmu skíðaslysi árið 2013 og hefur hann ekki sést opinberlega síðan og aðeins örfáir fengið að heimsækja hann.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅