Tepptu umferð, sátu í gluggum og hrópuðu

„Þetta er hegðun sem á alls ekki að sjást í umferðinni,“ segir Logi Sigurjónsson aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar vegna myndskeiðs sem mbl.is hefur undir höndum þar sem sjá má menn á bifreiðum teppa umferð, sitja í gluggum og hrópa eða kalla. 

Athæfið ku vera í tengslum við gleðskap í Mosfellsbæ í upphafi nóvembermánaðar þar sem saman var kominn fjöldi manns. 

Á myndbandinu má sjá bíla með hættuljósin kveikt í samfloti á Vesturlandsvegi þar sem þeir lokuðu af akreinum þannig að þeir bílar sem eftir komu þurftu að hægja ferð og komust ekki framhjá. Á þessum slóðum er 80 km hámarkshraði.  

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab