Valsari ruglaðist á flugvöllum og missir af leiknum
Valsararnir Kristófer Acox og Kári Jónsson í baráttunni við Martins Laksa í leik Vals og Álftanes á dögunum. mbl.is/Karítas
Karlalið Vals í körfubolta verður án eins af sínum erlendu leikmönnum í kvöld þegar liðið mætir Hetti á Egilsstöðum í 7. umferð úrvalsdeildarinnar.
Þetta herma heimildir mbl.is og Morgunblaðsins en Valsmenn vildu ekki gefa það upp hver af erlendum leikmönnum liðsins hefði orðið eftir í bænum í samtali við mbl.is.
Valsmenn flugu til Egilsstaða í hádeginu í dag frá Reykjavíkurflugvelli en leikmaðurinn sem varð eftir í bænum fór upp á Keflavíkurflugvöll.
Hann missti því af fluginu austur, af augljósum ástæðum, en liðin mætast á Egilsstöðum í kvöld klukkan 19.15.
Valsmenn hafa byrjað tímabilið af krafti og eru með 10 stig í fjórða sætinu en liðið hefur unnið fimm af fyrstu sex leikjum sínum. Höttur er í áttunda sætinu með fjögur stig.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗