Hollt og gott og kostar varla baun

Læknirinn Amit Garg birtir reglulega myndskeið þar sem hann eldar og borðar baunarétti og sýnir að baunir eiga heima í öllum máltíðum dagsins. Samsett mynd

Allir og amma þeirra eru á samfélagsmiðlum og margir deila þar hjálplegum ráðum, gómsætum uppskriftum og öðru nytsamlegu. Einn þeirra er læknirinn Amit Garg, sem deilir efni undir nafninu blooddocdad á Facebook, Instagram og TikTok. Þar fjallar hann um krabbamein og blóðsjúkdóma, deilir uppskriftum að hollum réttum og gefur innsýn í það sem hann sjálfur velur að borða.

Garg er mikill aðdáandi bauna, enda eru þær góður prótín- og trefjagjafi og má nota þær í fjölbreytta rétti. Ekki er verra að þær eru líka ódýrt hráefni.

Samkvæmt World Cancer Research Fund eru sterkar vísbendingar um að trefjarík fæða dragi úr hættu á krabbameini í ristli og endaþarmi. Það er því góð ástæða til að gefa baunum meira pláss á vikumatseðlinum.

Hér fyrir neðan má sjá myndbönd hans með hugmyndum að morgunmat, hádegismat, kvöldmat og snarli þar sem baunir eru í aðalhlutverki.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab