Fresta uppbyggingu á Aðaltorgi
Horft yfir Aðaltorg. Hótelið er hægra megin en nýr þjónustukjarni vinstra megin. Íbúðir munu rísa á óbrotnu landi. Ljósmynd/Adam Calicki/Aðaltorg
Ingvar Eyfjörð framkvæmdastjóri Aðaltorgs segir frekari uppbyggingu við Aðaltorg í Reykjanesbæ hafa verið slegið á frest en margir þættir leggist þar á eitt.
Aðaltorg hefur áformað mikla uppbyggingu í kringum Aðaltorg, gegnt Keflavíkurflugvelli, en þar er búið að byggja upp Courtyard by Marriott-hótel og verslunarhúsnæði.
Stóð til að byggja alls 450 íbúðir innan svonefnds lífsgæðakjarna Aðaltorgs á næstu árum, 138 öryggis- og þjónustuíbúðir og 312 almennar íbúðir. Var hugmyndin sú að öll meginnærþjónusta væri í göngufæri, þ.m.t. matvöruverslun, en Nettó og Arion banki hafa komið sér fyrir á Aðaltorgi, ásamt tíu tannlæknum frá Aðalbrosi og tannsmið.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗