Telja líklegt að reynt verði að fremja hryðjuverk í Noregi

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 13:47

Frá miðborg Osló. Mynd/Pexels

Norska öryggislögreglan (PST) telur líklegt að íslamskir öfgamenn og hægriöfgamenn muni gera tilraunir til að fremja hryðjuverk í Noregi á næstu tólf mánuðum.

Þetta kemur fram í uppfærðu ógnarmati PST sem norski fjölmiðillinn VG greinir frá. Hryðjuverkaógnin hefur aukist nokkuð frá síðasta mati PST.

Öryggislögreglan bendir meðal annars á aukna hópamyndun meðal íslamskra öfgamanna, fleiri tengsl milli einstaklinga og öfganeta og vaxandi áhuga einstaklinga á að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin ISIS.

Ógnin af hálfu hægriöfgamanna hefur einnig aukist og telur PST líklegt að þeir muni gera tilraunir til að fremja hryðjuverk í Noregi á árinu 2027.

PST vekur jafnframt athygli á nýjum flokki öfgahyggju í ógnarmati sínu, svokallaðri níhílískri öfgahyggju (n. nihilistisk ekstremisme). Þar er meðal annars um að ræða samfélög á netinu þar sem gróft ofbeldi er upphafið og markmiðið er að skapa glundroða, vekja ótta og grafa undan samfélaginu.

Sérstakar áhyggjur eru af því að þeir sem taka þátt í slíkri starfsemi eru að mestu leyti börn og unglingar. PST telur mögulegt að einstaklingar úr þessum hópum muni reyna að fremja hryðjuverk í Noregi.

Astri Aas-Hansen, dómsmálaráðherra Noregs, varar við því að efni á netinu geti á skömmum tíma ýtt ungu fólki út í öfgahyggju og ofbeldi. Hún leggur áherslu á mikilvægi forvarna og að komið sé í veg fyrir félagslega einangrun. Lögreglan og öryggisyfirvöld geti ekki leyst vandann ein og sér.

Þrátt fyrir auknar áhyggjur öryggislögreglunnar verður ógnarstig vegna hryðjuverka í Noregi óbreytt, á þriðja stigi af fimm mögulegum, sem þýðir að ógnin er metin í meðallagi.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab