Segir andstæðinga EES á Íslandi haldna hættulegri gyllivon - „Gæti reynst dýrkeyptur misskilningur“
Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, varar við því að Ísland segi sig frá EES-samningnum í þeirri trú að þjóðin geti samið um sambærileg kjör með fríverslunarsamningi. Þetta kemur fram í grein Baudenbachers hjá Vísi þar sem hann varar við gyllivon um fríverslunarsamning. .
„Að segja skilið við EES og njóta áhyggjulausrar fríverslunar hljómar eins og frelsun. Fyrir Ísland gæti það reynst dýrkeyptur misskilningur að rugla saman opnum dyrum og réttindum til að halda dyrunum opnum. Þeir sem vilja yfirgefa EES verða að segja til um hvað taki við. Ekki með slagorðum heldur með vísun til samnings sem raunverulega er hægt að semja um. Land á stærð við Ísland getur ekki sjálft sett Evrópusambandinu skilmála.“
Baudenbacher segir að hægt sé að draga lærdóm af stöðu Sviss. Þar er búið að gera pakka af samningum við ESB sem veita afmarkaðan aðgang að innri markaði. Þessir samningar eru þó ekki það sama og EES-aðild og gætu seint kallast fríverslunarsamningur. Þar þarf Sviss eins að sætta sig við að veita erlendum dómstól, Evrópudómstólnum, úrskurðarvald um sín eigin málefni. Færu Íslendingar sömu leið gengi það í berhögg við stjórnarskrána. Hvorki samningar Sviss né EES-samningurinn séu fríverslunarsamningar.
„Að flokka hvort tveggja sem „fríverslun“ er að rugla saman heilu húsi og örfáum leiguherbergjum.“
Bretar hafi gengið úr ESB með yfirlýsingum um að endurheimta stjórnina, stjórn sem þeir þurfa nú líklega að afsala sér til Evrópudómstólsins með nýjum samningum sem verði jafn ójafnir og samningar Sviss. Staða Íslands í EES og EFTA sé mun sterkari. Þar sé sjálfstæður dómstóll sem byggir á einsleitni en ekki hlýðni. Eins geti EFTA-dómstóllinn sjálfur útkljáð lagaspurningar í stað þess að bíða eftir bindandi svari frá Evrópudómstólnum.
Íslendingar tali um EES-samninginn sem sinn mikilvægasta og víðtækasta samning og það ekki að ástæðulausu. Talsmenn þess að segja sig úr samningnum þurfi að svara því hvað taki við. Hvaða réttindum vill Ísland halda eftir, hvers konar úrskurðarvald þyrfti að endursemja um og fyrst og fremst hvers vegna ætti Evrópusambandið að bjóða litlu ríki á borð við Ísland betri kjör en Sviss. Fríverslun sé markmið í samningaviðræðum en ekki sjálfkrafa samningsniðurstaða, en Baudenbacher telur það hættulega tálsýn að ganga út frá því að Íslandi standi til boða fríverslunarsamningur með betri kjörum en þeim sem stærri ríkjum hefur boðist.
„Þeir sem vilja yfirgefa EES þurfa fyrst að sýna að hvað getur komið í staðinn. Að skella dyrunum er auðvelt. Þið fáið ekki að stýra því á hvaða forsendum dyrnar opna að nýju.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗