Ingvar ákærður fyrir stórfelld skattsvik í rekstri ræstingafyrirtækis – Tók 188 milljónir út úr rekstrinum
Héraðssaksóknari hefur ákært Ingvar Frey Guðjónsson fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum í rekstri fyrirtækisins Hreinsun.is, en hann var eigandi, stjórnandi og prókúruhafi fyrirtækisins.
Hreinsun.is ehf var stofnuð árið 2005, en fyrirtækið sinnti almennum þrifum bygginga. Það var úrskurðað gjaldþrota árið 2025 og afskráð í byrjun mars á þessu ári.
Ingvari er gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum fyrir rekstrarárin 2018 til og með 2022, og hafa ekki staðið skil á þeim virðisaukaskatti sem bar að innheimta. Nema þessi vanskil um 51,3 milljónum króna.
Hann er einnig sakaður um að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald í rekstri Hreinsun.is ehf. í samræmi við kröfur laga um bókhald.
Tók hátt í 200 milljónir út úr rekstrinum
Ingvar er jafnframt sakaður um að hafa fyrir tekjuárin 2018-2022 ekki gert grein fyrir úttektum sínum úr rekstri Hreinsun.is ehf, samtals að fjárhæð 188.862.883 kr. sem voru skattskyldar tekjur.
Vangreiddur tekjuskattur og útsvar af þessari upphæð nemur rúmlega 85,3 milljónum króna.
Samtals nema því meint vanskil Ingvars á skattgreiðslum rétt tæplega 137 milljónum króna, samkvæmt ákærunni.
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 26. nóvember næstkomandi.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗