Hefur ekki áhyggjur af því að missa eftirsóttan leikmann
Fjöldi úrvalsdeildarfélaga fylgist með Will Lankshear, framherja Middlesbrough.
Lankshear, sem er 21 árs, gekk til liðs við Middlesbrough frá Tottenham síðasta sumar fyrir 10 milljónir punda. Hann hefur skorað 15 mörk í 16 leikjum og er í kjölfarið ansi eftirsóttur.
Kim Hellberg, stjóri Middlesbrough, hefur þó litlar áhyggjur af því að missa leikmanninn í janúar.
„Félagið hefur engan áhuga á að selja Will og ég held að hann hafi engan áhuga á að fara neitt,“ sagði Hellberg.
Middlesbrough er í öðru sæti ensku B-deildarinnar og ætlar sér upp í úrvalsdeildina í vor.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗