Pochettino vill fá fimm nýja leikmenn

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino. AFP/JC RUIZ

Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino vill fá fimm nýja leikmenn til Manchester United í næstu félagaskiptagluggum.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Pochettino, sem er 54 ára gamall, tók við stjórnartaumunum hjá enska félaginu á dögunum.

Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Calvin Bassey og Antoine Robinson hjá Fulham, Jarrad Branthwaite hjá Everton, Alejandro Balde hjá Barcelona og Ryan Ait-Nouri hjá Manchester City.

Allt eru þetta varnarmenn en United mun þurfa að endurnýja varnarlínu sína í sumar þegar margir af varnarmönnum félagsins verða samningslausir.

United hefur fengið á sig 19 mörk í tíu leikjum í úrvalsdeildinni á tímabilinu en liðið er með átta stig í 18. sætinu sem er jafnframt fallsæti, stigi frá öruggu sæti.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab