Lögreglan lýsir eftir 14 ára dreng
Innlent | mbl | 19.11.2026 | 13:42
Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Szymon Henryk Suchecki, 14 ára dreng sem búsettur er í Borgarnesi.
Szymon er 165 sm á hæð, grannvaxinn, með stutt dökkt hár og var klæddur í dökkar buxur og peysu.
Talið er að Szymon sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Þau sem vita eitthvað um ferðir Szymons eða hvar hann er niðurkominn eru beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 112, að því er segir í tilkynningu lögreglu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗