Vilja einfalda skattalega umgjörð íþróttastarfsemi

Andri Stefánsson, Hlynur Ingason, Willum Þór Þórsson, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Jónas Gestur Jónasson og Ingibjörg Helga Helgadóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Starfshópur sem Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra skipaði til að fara yfir skattaleg réttindi og skyldur þeirra sem standa að íþróttastarfsemi hefur skilað skýrslu með tillögum að úrbótum.

Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins. Hópnum var falið að leggja mat á hvaða leiðir væru færar til að efla og tryggja skilvirkni, gagnsæi og jafnræði í skattskilum íþróttafélaga.

Í skýrslunni eru lagðar fram tillögur sem eiga að skýra og einfalda skattalega umgjörð íþróttahreyfingarinnar.

Tillögurnar bætast við þær úrbætur sem tóku gildi í ársbyrjun 2026 þegar frítekjumark barna var hækkað úr 180.000 kr. í 300.000 kr., fjárhæðarmörk launa einstaklinga við sjálfstæða starfsemi voru hækkuð úr 450.000 kr. í 700.000 kr. og 60% endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna mannvirkjagerðar almannaheillafélaga var gerð varanleg.

Starfshópurinn kom með eftirfarandi tillögur:

  • Breytingar til að einfalda og festa í sessi skattalegt hagræði einstaklinga og ungmenna sem afla takmarkaðra tekna af minni háttar tilfallandi störfum tengdum íþróttastarfsemi.
  • Undanþágur frá virðisaukaskatti verði skýrðar og tryggt að þær nái til fleiri þátta íþróttastarfsemi.
  • Skilgreiningar á íþróttamannvirkjum, annarri sérútbúinni aðstöðu til íþróttaiðkunar og þeim búnaði sem telst eðlilegur hluti af slíkri starfsemi verði skýrari.
  • Mótsgjafir á barnamótum skerði ekki skattfrelsi þátttökugjalda eða aðgangseyris.
  • Reglur geri skýrari greinarmun á styrkjum til íþróttafélaga sem eru ekki skattskyldir og greiðslum sem fela í sér auglýsinga- eða kynningarþjónustu.
  • Heimilt verði að skipta greiðslum sem fela bæði í sér stuðning og tiltekið mótframlag í annars vegar óskattskyldan styrk og hins vegar skattskylda þjónustu, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
  • Skatturinn og ÍSÍ verði í reglubundnu og markvissu samstarfi um fræðslu til íþróttafélaga um skattaleg málefni, bókhald og skattskil.

Starfshópurinn hafði til hliðsjónar leiðbeiningar Skattsins um skattskyldu íþróttastarfsemi og skoðaði framkvæmd á öðrum Norðurlöndum.

Hann var skipaður fulltrúum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Formaður hópsins var Helga Jónsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu skattamála.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab