Homo erectus gekk vel að aðlagast
Homo erectus, fjarskyldur ættingi okkar, aðlagaðist umhverfinu í þéttum skógum Suður-Kína, samkvæmt tveimur rannsóknum sem voru birtar í gær og ögra ríkjandi kenningu um hvernig tegundin dó út.
Forfeður okkar lifðu í næstum tvær milljónir ára, mun lengur en Homo sapiens, eina manntegundin sem er til í dag, sem hefur aðeins verið til í um 300.000 ár.
Þessir fornu menn fluttust frá graslendum gresjum Afríku, þvert yfir Asíu, til opins umhverfis og gisinna skóga Jövu, þar sem yngstu steingervingarnir, um 108.000 ára gamlir, hafa fundist.
Hingað til hafa vísindamenn talið að hvarf þeirra í Asíu hafi stafað af því að þeir gátu ekki aðlagast þegar umhverfi þeirra tók að breytast í hitabeltisregnskóg.
Hundruð þúsunda ára bil brúað
„Nú hefur hið gagnstæða komið í ljós samkvæmt okkar niðurstöðum,“ segir Yingqi Zhang, vísindamaður við Kínversku vísindaakademíuna.
Í tveimur rannsóknum í tímaritinu Nature (Náttúra), er því haldið fram að steingervingar, sem sýni tennur Homo Erectus, hafi fundist í suðurhluta Kína. Tegundin virðist því hafa komist þangað áður en hún dó út.
Þar til nú var elsti steingervingurinn frá Homo Erectus talinn vera 400.000 ára gamall. Vísindamennirnir kínversku segja uppgötvunina sýna að yngstu steingervingarnir séu frá 324.000 ára til 184.000 ára.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
